Íþróttir | Golf | mbl | 15.7.2026 | 16:25 Formaðurinn hafði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausninni Þorláksvöllur í Þorlákshöfn. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Dómstóll GSÍ hefur vísað máli Kára H. Sölmundarsonar, formanns Golfklúbbsins Odds, gegn Golfklúbbi Þorlákshafnar, frá dómi. Telur dómurinn að Kári hafi hvorki sýnt fram á að gert hafi verið á hans hlut í skilningi 5. gr. laga um dómstól GSÍ né að hann hafi þá lögvörðu hagsmuni af úrlausn málsins sem áskildir eru samkvæmt ákvæðinu. Málinu var úthlutað til Sólveigar Bachmann Gunnarsdóttur, dómara í dómstól GSÍ en fyrir mistök var kærandi sagður Golfklúbburinn Oddur í tilkynningu til kærða. Var það leiðrétt með boðun til þinghalds og árétta við þingfestingu en málið var þingfest 11. maí og dómtekið samdægurs. Úrskurður dómstóls GSÍ er dagsettur 26. júní og segir í honum að uppsaga hafi dregist vegna leyfa og anna dómara. Frétt af mbl.is Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Tekist á um takmarkaða fjaraðild Kæra Kára sneri að fyrirkomulagi auglýsts tilboðs Golfklúbbs Þorlákshafnar um svokallaða fjaraðild fyrir iðkendur án félagsréttinda. Telur Kári slíka takmörkun á réttindum félagsmanna brjóta í bága við ákvæði greinar 5.2 laga Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem kveða á um skilyrði fyrir inngöngu íþróttafélaga í íþróttahéruð. Í e-lið greinarinnar segir að félagsaðild sé alltaf frjáls öllum þeim sem gangast undir lög og reglur félags. Ekki sé heimilt að gera aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður, t.d. þjálfunaraðstæður leyfa. Félagi sé þó heimilt að takmarka þátttöku félagsmanna eða útiloka þá frá félagsstarfi á grundvelli brota á lögum og reglum íþróttahreyfingarinnar. Óskýr ákvæði verði skýrð betur Golfklúbbur Þorlákshafnar telur ákvæði laga ÍSÍ hvað þetta varðar óskýr og telur mikilvægt að þau verði skýrð betur. Klúbburinn bendir í því sambandi á orðalagið um ytri aðstæður. Fjaraðildina býður Golfklúbbur Þorlákshafnar á 9.900 krónur og innifalið í tilboðinu er einn golfhringur, aðgangur að Golfbox-skráningarkerfinu og þannig möguleiki að fá skráða gilda forgjöf, réttindi til að bóka rástíma og skrá sig til leiks í golfmót bæði hér heima og erlendis. Það sem ekki er innifalið í tilboðinu er aðgangur að innanfélagsmótum, vinavöllum og atkvæðis- og framboðsréttur á aðalfundi. Kári H. Sölmundarson, formaður Golfklúbbsins Odds. Ljósmynd/Garðar Pétursson Ávinningur fyrir hreyfinguna og fólkið Vigdís Gunnarsdóttir, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Golfklúbbs Þorlákshafnar, sem mætti í dóminn fyrir hönd Golfklúbbs Þorlákshafnar, sagði í samtali við mbl.is í apríl að klúbburinn hafi viljað láta reyna á ákvæði laga ÍSÍ sem snúa að takmörkun félagsréttinda. „Við auglýstum það sem við köllum fjaraðild og er nýtt hjá okkur en er þekkt hjá öðrum klúbbum þó það sé svolítið misjafnt hvað það þýðir. Þróun síðustu ára hefur verið að t.d. þau sem standa utan golfklúbba, hafa getað greitt sífellt lægra gjald fyrir númer í tölvukerfi golfhreyfingarinnar og þannig fengið tæknilega getu til að bóka rástíma á Golfbox, tekið þátt í opnum mótum, verið með forgjöf og viðhaldið henni, skráð þá hringi til forgjafar innanlands og víða erlendis.“ Vigdís sagði það lengi hafa verið í umræðunni í hreyfingunni hvort ekki væri sniðugt að útbúa úrræði, svona hálfgerðan „klúbb klúbblausra“ en aldrei hafi neitt verið gert í því. „Okkur fannst ávinningur fyrir hreyfinguna og fyrir fólkið sem vill stíga fyrstu skrefin í golfi að auglýsa eða bjóða eitthvað svona, eins og sumir aðrir hafa gert en við erum með þetta á lægra verði. Fólk getur litið á hringinn sem prufuhring hjá okkur. Ef það er ánægt getur það nýtt alla fjárhæðina til uppfærslu í einhverja félagsaðild.“ Verður skorið úr um ágreiningsefnið með öðrum hætti? Samkvæmt 5. gr. laga um dómstól GSÍ hefur hver sá einstaklingur eða félag sem misgert er við og hefur hagsmuni af niðurstöðu máls rétt til kæru en dómstólinn taldi sem áður segir Kára ekki hafa sýnt fram á að gert hafi verið á hans hlut. Þannig má ljóst vera að ágreiningsefnið verður ekki leitt til lykta í gegnum kæru Kára H. Sölmundarsonar, formanns Golfklúbbsins Odds. Áhugavert verður að sjá hvort önnur kæra komi fram sem ætlað er að leiða ágreiningsefnið til lykta eða hvort forsvarsmenn Golfsambands Íslands og íþróttahreyfingarinnar ráðist í einhverja vinnu sem miðar að því að skýra málið því ljóst er að sitt sýnist hverjum og kannski mikilvægt að skorið verði úr um hvað er sjálfsagt og eðlilegt í þessum efnum. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Frakkar brjálaðir: Stórstjörnurnar fá falleinkunn Sögulegur leikur: „Þetta gæti allt farið úr böndunum“ David Beckham kemur eiginkonu sinni til varnar Þjálfari Spánverja átti erfitt með sig Umdeild ákvörðun FIFA brýtur eigin lög Stórbrotnir Spánverjar fóru illa með Frakka Hálftíma hálfleikur í úrslitaleiknum? Heimabær Bellinghams iðar Vill einungis fara til Arsenal Barcelona vill losna við landsliðsmanninn Myndir: Haaland sleikti sárin með Íslendingum í Miami Daníel hetja Víkings í Ungverjalandi Stórbrotnir Spánverjar fóru illa með Frakka Óvenjulegar myndir af HM-stjörnunni vekja athygli „Við munum svæfa Messi“ Vilja fá Pep Guardiola í starfið Meiddur heim af HM og gæti verið frá í marga mánuði Hættir 25 ára vegna andlegrar heilsu Í fyrsta sinn í sögu Frakklands Skrifar undir fimm ára samning í Manchester Myndir: Haaland sleikti sárin með Íslendingum í Miami Argentína áfram eftir rautt og dramatík Bellingham hetja Englands gegn Noregi Hundruð milljóna í húfi: Fór Ronaldo að gráta? Svona líta átta liða úrslitin á HM út Messi við dómarann: Ekki sýna mér vanvirðingu Fyrrverandi leikmaður Þórs og Hamars var myrtur Svona líta undanúrslitin út Aldrei gerst áður í sögu HM Gagnrýna Haaland fyrir ummælin Fleira áhugavert Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Starmer gefur lítið fyrir kvabb um Falklandseyjar Fengu rangar upplýsingar um mengunarvarnir Hvals Skipverjarnir játa sök Mest lesið Í gær Í vikunni Frakkar brjálaðir: Stórstjörnurnar fá falleinkunn Sögulegur leikur: „Þetta gæti allt farið úr böndunum“ David Beckham kemur eiginkonu sinni til varnar Þjálfari Spánverja átti erfitt með sig Umdeild ákvörðun FIFA brýtur eigin lög Stórbrotnir Spánverjar fóru illa með Frakka Hálftíma hálfleikur í úrslitaleiknum? Heimabær Bellinghams iðar Vill einungis fara til Arsenal Barcelona vill losna við landsliðsmanninn Myndir: Haaland sleikti sárin með Íslendingum í Miami Daníel hetja Víkings í Ungverjalandi Stórbrotnir Spánverjar fóru illa með Frakka Óvenjulegar myndir af HM-stjörnunni vekja athygli „Við munum svæfa Messi“ Vilja fá Pep Guardiola í starfið Meiddur heim af HM og gæti verið frá í marga mánuði Hættir 25 ára vegna andlegrar heilsu Í fyrsta sinn í sögu Frakklands Skrifar undir fimm ára samning í Manchester Myndir: Haaland sleikti sárin með Íslendingum í Miami Argentína áfram eftir rautt og dramatík Bellingham hetja Englands gegn Noregi Hundruð milljóna í húfi: Fór Ronaldo að gráta? Svona líta átta liða úrslitin á HM út Messi við dómarann: Ekki sýna mér vanvirðingu Fyrrverandi leikmaður Þórs og Hamars var myrtur Svona líta undanúrslitin út Aldrei gerst áður í sögu HM Gagnrýna Haaland fyrir ummælin Fleira áhugavert Óljóst hvort umdeild drög fari aftur í samráðsgátt Ákærður fyrir umferðarslys þar sem tveir létust Komust hjá aflífun hunds Fleiri konur hverfa frá námi en áður