Innlent | mbl | 10.4.2026 | 10:40 Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Þorláksvöllur í Þorlákshöfn. Ljósmynd/Aðsend Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Golfklúbburinn Oddur hefur kært Golfklúbb Þorlákshafnar til dómstóls GSÍ vegna fyrirkomulags auglýsts tilboðs síðarnefnda klúbbsins um fjaraðild fyrir iðkendur án félagsréttinda. Telur Golfklúbburinn Oddur slíka takmörkun á réttindum félagsmanna brjóta í bága við ákvæði greinar 5.2 laga Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, sem kveða á um skilyrði fyrir inngöngu íþróttafélaga í íþróttahéruð. Í e-lið greinarinnar segir að félagsaðild sé alltaf frjáls öllum þeim sem gangast undir lög og reglur félags. Ekki sé heimilt að gera aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður, t.d. þjálfunaraðstæður leyfa. Félagi sé þó heimilt að takmarka þátttöku félagsmanna eða útiloka þá frá félagsstarfi á grundvelli brota á lögum og reglum íþróttahreyfingarinnar. Ákvæði laganna óskýr Golfklúbbur Þorlákshafnar telur ákvæði laga ÍSÍ hvað þetta varðar óskýr og telur mikilvægt að þau verði skýrð betur. Klúbburinn bendir í því sambandi á orðalagið um ytri aðstæður. Fjaraðildina býður Golfklúbbur Þorlákshafnar á 9.900 krónur og innifalið í tilboðinu er einn golfhringur, aðgangur að Golfbox-skráningarkerfinu og þannig möguleiki að fá skráða gilda forgjöf, réttindi til að bóka rástíma og skrá sig til leiks í golfmót bæði hér heima og erlendis. Það sem ekki er innifalið í tilboðinu er aðgangur að vinavöllum og atkvæðis- og framboðsréttur á aðalfundi. Golfsamband Íslands er til húsa í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. mbl.is/Árni Sæberg „Klúbbur klúbblausra“ Kári H. Sölmundarson, formaður Golfklúbbsins Odds, segir í samtali við mbl.is að lög Golfsambands Íslands geri ráð fyrir því að forgjöf sé gefin út á félagsmenn golfklúbba og að Golfklúbbur Þorlákshafnar sé að selja aðgang að skráningarkerfinu og möguleikann á forgjöf frá Golfsambandinu án þess að uppfylla grunnskilyrðin, að félagsmenn í golfklúbbum séu með full réttindi sem slíkir. Vigdís Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Þorlákshafnar, segir að klúbburinn hafi viljað láta reyna á ákvæði laga ÍSÍ sem snúa að takmörkun félagsréttinda. „Við auglýstum það sem við köllum fjaraðild og er nýtt hjá okkur en er þekkt hjá öðrum klúbbum þó það sé svolítið misjafnt hvað það þýðir. Þróun síðustu ára hefur verið að t.d. þau sem standa utan golfklúbba, hafa getað greitt sífellt lægra gjald fyrir númer í tölvukerfi golfhreyfingarinnar og þannig fengið tæknilega getu til að bóka rástíma á Golfbox, tekið þátt í opnum mótum, verið með forgjöf og viðhaldið henni, skráð þá hringi til forgjafar innanlands og víða erlendis.“ Vigdís segir það lengi hafa verið í umræðunni í hreyfingunni hvort það væri ekki sniðugt að útbúa úrræði, svona hálfgerðan „klúbb klúbblausra“ en aldrei sé neitt gert í því. „Okkur fannst ávinningur fyrir hreyfinguna og fyrir fólkið sem vill stíga fyrstu skrefin í golfi að auglýsa eða bjóða eitthvað svona, eins og sumir aðrir hafa gert en við erum með þetta á lægra verði. Fólk getur litið á hringinn sem prufuhring hjá okkur. Ef það er ánægt getur það nýtt alla fjárhæðina til uppfærslu í einhverja félagsaðild. Ég átta mig ekki alveg á þessari óánægju. Ég hefði haldið að það væri bara gott að fleira fólk kynntist því sem hreyfingin hefur upp á að bjóða, komist inn í þetta samfélag því margir golfklúbbar á höfuðborgarsvæðinu eru fullir og fólk kemst ekki inn.“ Teljast biðlistar til ytri aðstæðna? Hvað álitaefnið á túlkun ákvæða laga ÍSÍ um takmörkun félagsréttinda varðar segir Vigdís að Golfklúbbur Þorlákshafnar líti svo á að fólk sem kaupi fjaraðild sé ekki að sækjast eftir því að starfa í félaginu. Fólkið viti hvað það þarf að gera til þess, sem sé einfaldlega að greiða félagsgjald og hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar séu þau með þeim lægri í golfhreyfingunni. „Okkur finnst 5. greinin í lögum ÍSÍ það óskýr að það sé bara hið besta mál að fá umræðu um þetta til að skerpa á lögunum. Í e-lið greinar 5.2 er kveðið á um aðgengi að félagsstarfi og takmarkanir vegna ytri aðstæðna, t.d. þjálfunaraðstæðna. Það er mjög óljóst orðalag,“ segir Vigdís og veltir fyrir sér hvort biðlistar gætu fallið þar undir. Hann segir ásetning Golfklúbbs Þorlákshafnar að flýta ákvörðun hjá golfhreyfingunni um það hvort Golfsambandið eigi að bjóða þessa grunnþjónustu sjálft, hafa af því tekjur og lækka skattinn á aðildarfélögin, þeim öllum til góða. „Nú kemur efnisleg meðhöndlun og vonandi verður hún til þess að skerpt verði á reglum og allir viti hvar öll mörk liggja.“ Kári H. Sölmundarson, formaður Golfklúbbsins Odds. Ljósmynd/Garðar Pétursson Formaðurinn stendur fyrir kærunni Kári segir að upphaflega hafi hann sent inn óformlegt erindi um að Golfklúbbur Þorlákshafnar væri að útfæra fjaraðild í berhögg við lög ÍSÍ en þar sem klúbburinn hafi ekki viljað bregðast við erindinu án þess að fá einhvern úrskurð hafi hann ákveðið að kæra. „Það er engin samþykkt innan klúbbsins fyrir að senda kæruna inn, ég sendi hana inn.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Í stofufangelsi í Mexíkó Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Kóngurinn græddi mest á stríðinu Feðgarnir í stuði í nótt Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kom til greina að segja skilið við stjórnmálin Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Útilokar hömlur á auðgun úrans Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ Gjaldmiðill og gengi á göflum Forseti Íslands minnist Björgvins Eldur kviknaði í skúr í Mosfellsdal Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Nýjast á mbl.is » Í stofufangelsi í Mexíkó Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Kóngurinn græddi mest á stríðinu Feðgarnir í stuði í nótt Umræðan Sleggjan sett á ESB-planið Gjaldmiðill og gengi á göflum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir konungsfjölskylduna þurfa Íslendinginn sem ráðgjafa Hafa ráðið einn erlendan lækni í fullt starf „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson Mest lesið Í gær Í vikunni Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi „Það verður rautt ljós sílogandi“ „Ríkisstjórnin er að blekkja almenning“ Tenórarnir tíu heiðruðu Kristján Jóhannsson „Skemmtiferðaskipin fóru einfaldlega annað“ Íris verður bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins Upplýsingagjöf „verulega áfátt“ Gjaldmiðill og gengi á göflum Forseti Íslands minnist Björgvins Eldur kviknaði í skúr í Mosfellsdal Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Boða til blaðamannafundar Kostnaður langt umfram áætlun Dóttir og eiginkona tókust á um arf heilabilaðs manns Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum „Hér er því farið með fleipur“ Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ „Risastórt skarð höggvið í íslenskt tónlistarlíf“ „Það verður rautt ljós sílogandi“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða