Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Dimon varar við áhættu „undir yfir­borðinu“

Read Full Article →

Jamie Dimon, for­stjóri JP­Morgan Chase, segir bandaríska hag­kerfið hafa sýnt tals­verðan viðnámsþrótt á árinu, en varar við því að stríðið við Íran, þrálát verðbólga, mikill halli á ríkis­fjár­málum og hátt eigna­verð geti raskað stöðunni. Um­mælin komu fram í tengslum við upp­gjör JP­Morgan fyrir annan árs­fjórðung. Bankinn skilaði 21,2 milljarða dala hagnaði á fjórðungnum, sem er 41% aukning frá sama tíma­bili í fyrra. Tekjur jukust um 27% og námu 58 milljörðum dala. Dimon sagði bandaríska hag­kerfið hafa verið sterkara en margir óttuðust. Það hefði meðal annars notið góðs af aukinni fjár­festingu fyrir­tækja, ráðningum, fjár­festingum tengdum gervi­greind, ör­vandi ríkis­fjár­málum og skil­virkara reglu­verki. Hann varaði þó við því að ýmsar áhættur væru að byggjast upp undir yfir­borðinu. „Nokkrar áhættur leynast þó undir yfir­borðinu og hreyfast eins og jarð­skorpuflekar, þar á meðal er pólitísk spenna og stríð, þrálát verðbólga, mikill halli á ríkis­fjár­málum á heims­vísu og hátt eigna­verð,“ sagði Dimon. Hann sagði ómögu­legt að spá fyrir um hvernig þessir kraftar myndu á endanum spila saman. Þeir gætu haldist viðráðan­legir en einnig valdið veru­legum truflunum ef þeir færðust til eða rækjust saman. Dimon sagði JP­Morgan fylgjast náið með áhættunni og undir­búa bankann fyrir ólíkar sviðs­myndir, þannig að hann geti þjónustað við­skipta­vini sína óháð aðstæðum á mörkuðum og í efna­hags­lífinu.

Share this article