Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

JPMorgan hækkar tvo mögulega arftaka Dimon í tign

Read Full Article →

Bandaríska bankasamstæðan JPMorgan Chase hefur tekið stórt skref í undirbúningi fyrir leiðtogaskipti innan fyrirtækisins með því að skipa Doug Petno og Troy Rohrbaugh sem næstræðendur forstjóra, nánar tiltekið í stöðu „Co-Presidents“. Á sama tíma hefur Marianne Lake, sem lengi hefur verið talin einn líklegasti arftaki Jamie Dimon forstjóra, ákveðið að láta af störfum eftir meira en 25 ár við störf hjá bankanum. Með þessari breytingu er talið að bankinn, sem er sá stærsti í Bandaríkjunum, sé að þrengja talsvert í hópi stjórnenda sem koma til greina í forstjórastólinn þeagr Jamie Dimon ákveður að láta af störfum. Hann hefur gegnt starfinu í tvo áratugi og er einn áhrifamesti stjórnandi fjármálaheimsins. „Þær breytingar sem kynntar eru í dag marka mikilvægt skref í yfirvegaðri áætlun stjórnarinnar um arftaka og þróun æðstu stjórnenda okkar,“ sagði Dimon í yfirlýsingu . Petno og Rohrbaugh fengu hvor um sig 30 milljóna dala sérstakan kaupauka, eða sem nemur 3,8 milljörðum króna, í tengslum við stöðuhækkunina, til að tryggja áframhaldandi störf þeirra þeirra hjá bankanum. Spurningin um hver tekur við af Dimon hefur um árabil verið meðal þeirra mest ræddu í bandarísku viðskiptalífi. Undir stjórn hans hefur JPMorgan orðið stærsti banki Bandaríkjanna, bæði miðað við eignir og markaðsvirði. Troy Rohrbaugh og Douglas Petno. © Aðsend mynd (AÐSEND) Markaðsvirði bankans nemur nú meira en 890 milljörðum dala og er hærra en samanlagt markaðsvirði helstu keppinautanna, Bank of America og Citigroup. Dimon, sem tók við sem forstjóri árið 2006, hefur ítrekað sagt að stjórnin vinni markvisst að arftakaáætlun og að innan bankans sé öflugur hópur stjórnenda sem geti tekið við keflinu þegar þar að kemur. Fyrr á þessu ári sagði hann að hann hygðist vera áfram forstjóri í nokkur ár til viðbótar og hugsanlega gegna síðar stöðu framkvæmdastjórnarformanns, allt eftir ákvörðunum stjórnar bankans.

Share this article