Innlent | Morgunblaðið | 11.7.2026 | 8:00 Bjargvættur og bölvaldur Ögmundur Jónasson Árni Sæberg Setja bókamerki Pistill Ögmundar Jónassonar úr Sunnudagsblaðinu Ég var aldrei mikið gefinn fyrir vísindaskáldsögur um óráðna framtíð. Það voru þá helst sögur sem höfðu augljósa skírskotun til samtímans, skrifaðar með það fyrir augum að vara við því sem gæti stefnt í hefðu menn ekki varann á. Framtíðarhrollvekja Orwells, 1984, er dæmi þar um. En nú hef ég verið tekinn í bólinu. Vísindaskáldsögurnar sem ég taldi vera fáfengilegan hugarleik sáu marga þróunina býsna vel fyrir. Veruleikinn hefur meira að segja tekið fram úr þeim flestum. Nýlega hlýddi ég á sérfræðing úr mannréttindageira Sameinuðu þjóðanna, konu með bakgrunn í bandarískri lögreglu, segja frá því hve mikilvægt það væri að missa aldrei sjónar á hinu mannlega í samskiptum á ögurstundum sem upp kæmu. Henni hefði þó brugðið í brún þegar hún nýlega kom í lögreglustöð þar sem henni var einkar vinsamlega tekið. Í ljós hefði svo komið að það var gervimaður sem sýndi henni svo mikla vinsemd. Hún kvað slíka tækni sífellt oftar nýtta og sagði frá gervihundi sem hefði snuðrað uppi sprengjur, fundið þær og þar með hugsanlega bjargað lífi lögreglumanna. Hvenær kæmi að því að í útkall færi sjálfkeyrandi bíll, með gervilögreglumenn, sem tækju við kvörtunum og afgreiddu mál til loka? En hver yrðu þau lok? Í athyglisverðu viðtali við formann Lögmannafélags Íslands í Spegli RÚV var sagt frá því að bresk lögfræðistofa hefði látið gervigreind senda lögformlegt innheimtubréf og höfða mál í framhaldinu. Málið hefði unnist. Upplýst var að gervigreindin væri þegar farin að gegna ákveðnu hlutverki í íslenska réttarkerfinu eins og annars staðar. Þróunin væri mjög hröð, enda gervigreindin öflugt verkfæri sem væri freistandi að grípa til. En hverju breytti það ef ágreiningsmál yrðu útkljáð af gervigreindarsækjanda, verjanda og dómara? Ég hef stundum vakið máls á niðurstöðum í réttarkerfinu sem orka vægast sagt tvímælis og hef þar í huga tiltekin ofbeldismál, illa rannsökuð af hendi lögreglu, ófaglega frágengin í heilbrigðiskerfinu, og niðurstaða dómara illa grunduð. Eftir hafa staðið einstaklingar sviptir frelsi og æru. Hefði gervigreindin staðið sig betur, gengið betur eftir faglegum niðurstöðum? Hefði hræðsla við óvæginn tíðaranda verið henni síður fjötur um fót en mennsku dómurunum? Eða hefði inni í hennar vinnu verið að finna uppsafnaða fordóma réttarkerfisins – mannlegan breyskleika í milljónasta veldi? Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gyðingar opna hús í miðbænum Antibes í Suður-Frakklandi er Tenerife Sólveigar Önnu Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Bjargvættur og bölvaldur Kjarkur til að stefna hátt Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spurningin kom Ingu rosalega á óvart Telur Sindra og Ísidór geta sótt tugi milljóna Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress Fyrrverandi ráðherra myrtur á heimili sínu Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland græði ekkert á aðild að ESB Moldin kom frá KR-vellinum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið KEA hótel láta flýta dagskrá rokkhátíðar 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Kona slasaðist á Falljökli Himinlifandi með Viðreisn og Framsókn Evrópu vaxandi vandi á höndum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Nýjast á mbl.is » Gyðingar opna hús í miðbænum Antibes í Suður-Frakklandi er Tenerife Sólveigar Önnu Myndir: Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni Bjargvættur og bölvaldur Kjarkur til að stefna hátt Umræðan Umhverfið á ekki að öskra Tilbrigði við stefið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sagðist hafa borið afrískan tannbursta en ekki hníf „Það er erfitt að sjá þetta“ Spurningin kom Ingu rosalega á óvart Evrópu vaxandi vandi á höndum Mest lesið Í gær Í vikunni Ísland græði ekkert á aðild að ESB Moldin kom frá KR-vellinum Furðar sig á úlpukaupum á AliExpress MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Lítið þarf til að skrúfa fyrir flugið KEA hótel láta flýta dagskrá rokkhátíðar 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Kona slasaðist á Falljökli Himinlifandi með Viðreisn og Framsókn Evrópu vaxandi vandi á höndum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Stefnir í mesta hita ársins um helgina Borgarbúar hvattir til að halda sig heima Lögreglan kaupir búnað á AliExpress Inga segir fréttir af drykkju sinni stórlega ýktar Andlát: Bragi Hannesson „Maður fær ekkert á föstudögum í sveitinni“ 26 gráðum spáð og Reykvíkingar streyma í bæinn Engin fordæmi um undanþágur „Sögðu okkur að flýta okkur eins hratt og við gátum“ Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Nálgunarbanns krafist Býst ekki við því að hótelið rísi Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu