Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.5.2026 | 9:17 Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Lögreglustjórinn á Suðurnesjum gaf út ákæruna. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni sem er sakaður um stórfellt brot í nánu sambandi fyrir að hafa ógnað lífi og heilsu kærustu sinnar með endurteknu líkamlegu og andlegu ofbeldi, hótunum og broti gegn kynferðislegri friðhelgi. Samkvæmt ákæru er manninum einnig gefið að sök að hafa beitt son kærustu sinnar líkamlegu ofbeldi í eitt skipti þegar hann reyndi að stöðva árás ákærða í garð móður hans. Í ákæru segir að maðurinn hafi brotið gegn kynferðislegri friðhelgi konunnar þegar hann hótaði að senda syni hennar og vinum hans myndefni sem hann hafði útbúið sem sýndi nekt konunnar og hana í kynferðislegum athöfnum. Maðurinn hótaði konunni myndsendingunni í smáskilaboðum þar sem hann sendi eftirfarandi skilaboð: „Im sending“ „To youe son now“ „Your son friends“ „Look your porn“ „Your son friends“ „Get this video“ „You will die alone“ „Like dog“ Tók drenginn hálstaki Þá segir að maðurinn hafi brotið myndaramma í eigu konunnar og í kjölfarið ráðist á hana og dregið hana eftir gólfi íbúðarinnar. Sonurinn var á heimilinu þegar árásin var framin og þurfti hann að skerast í leikinn til að vernda móður sína og stöðva árás ákærða. Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa tekið um háls drengsins þegar hann reyndi að stöðva árásina í garð móður hans. Fleiri ofbeldisverkum ákærða er lýst í ákæru þar sem hann réðst gegn konunni og beitti hana ofbeldi. Óttaðist um líf sitt Þá segir að maðurinn hafi brotið gegn nálgunarbanni auk þess sem hann beitti konuna síendurteknu og alvarlegu andlegu ofbeldi og hótunum, bæði í eigin persónu, með smáskilaboðum, með Messenger og Instagram skilaboðum. Maðurinn hótaði konunni m.a. lífláti, hótaði að rústa henni og eyðileggja hana og líf hennar, talaði niður til hennar og kallaði hana illum nöfnum, m.a. hóru og tík. Í ákærunni segir að afleiðingar háttsemi ákærða hafi leitt til þess að konan bjó við viðvarandi ógnarástand þar sem hún óttaðist ákærða og um líf sitt. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Frakkinn stórkostlegur í fyrsta leik Átta látnir eftir skotárás í Egyptalandi United græddi á stórum mistökum Farmannastétt útrýmt með útvistun Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þessa meirihluta getur Hildur myndað Vinnubrögðin vanvirðing við skyldu nefndarinnar Fundað í Grænlandsmáli: „Góður tónn“ HMS hafnar seinagangi og ætlar að skila áliti fljótlega Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Réttindalaus á nagladekkjum og með röng skráningarnúmer Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ „Logn var veðurs,“ eins og þar segir Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Nýjast á mbl.is » Hótaði að senda syni kynferðislegt myndefni Frakkinn stórkostlegur í fyrsta leik Átta látnir eftir skotárás í Egyptalandi United græddi á stórum mistökum Farmannastétt útrýmt með útvistun Umræðan Kjósendur treysta Framsókn til verka Værum efnislega gengin í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Fundað í Grænlandsmáli: „Góður tónn“ Þessa meirihluta getur Hildur myndað Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Hildur nýr oddviti: „Svona maður er Guðmundur“ Sló leikskólabarn í andlitið og son sinn einnig Biðla til ökumanna að sýna þolinmæði vegna tafa Ari, Björg og Einar fús til samstarfs Réttindalaus á nagladekkjum og með röng skráningarnúmer Ekki hlutverk ríkisins að bæta Eyjamönnum tjónið ASÍ og BSRB andvíg innviðafélagi Gjöldin hækkuðu um 60% frá 2021 „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ „Logn var veðurs,“ eins og þar segir Andlát: Árni Tómas Ragnarsson Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Segist hafa eytt myndbandi eftir hótanir lögreglu Hættur í pólitík: „Dómurinn er fallinn“ Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Ávarpar landsmenn: „Það tökum við alvarlega“ Höfnuðu utan vegar við Breiðholtsbraut Eldur kviknaði í manni eftir afskipti lögreglu Flugi Icelandair seinkað vegna skorts á áhöfn „Þannig virðist símtalið koma frá Íslandi“ Beint: Brugðist við kosningunum Þorgerður: Skýrt hverjum Viðreisn vinni ekki með Borgin gaf upp vitlausar lokatölur Myndskeið: Létu höggin dynja og hræktu á manninn Vann 130 milljónir Greiddi sama flugið tvisvar Spáir falli ríkisstjórnarinnar eftir kosningaafhroð Hvaða meirihluta er hægt að mynda í borginni? Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi

Share this article