Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Okkur finnst við eiginlega vera að gabba þau“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.6.2026 | 15:30 „Okkur finnst við eiginlega vera að gabba þau“ Frá ráðstefnunni. Ljósmynd/Háskóli Íslands Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Þjóðfræðingurinn Dagrún Ósk Jónsdóttir segir merkilegt að átta sig á því að sömu sögurnar eru í raun sagðar um allan heim, þó með ólíkum blæbrigðum. Hún er einn aðstandandi ráðstefnu yfir 600 þjóðsagnafræðinga og fræðafólks á sviði frásagnarannsókna víðs vegar að úr heiminum í Háskóla Íslands. Dagskráin hefur gengið vonum framar og hún segir að helsta umkvörtunarefni gesta hafi verið of gott veður. „Þetta er ráðstefna sem er haldin annað hvert ár og flakkar á milli ólíkra staða í heiminum. Núna erum við hérna á Íslandi að taka á móti þessari ráðstefnu í fyrsta skipti. Það er ótrúlega skemmtilegt að geta boðið allt þetta fólk velkomið,“ segir Dagrún. Ráðstefnan hófst á sunnudaginn en þema hennar í ár er „Nature(s) in Narrative“ eða náttúra í sögum. Mjög fjölbreytt viðfangsefni Spurð hvort það sé eitthvað sérlega ofarlega á baugi hjá þjóðsagnafræðingum heimsins þegar kemur að þessari áherslu segir Dagrún Ósk að um mjög breytt þema sé að ræða. Sjálf er hún til að mynda búin að sækja málstofur sem snúast um hið náttúrulega og yfirnáttúrulega, landslag í náttúru og borg og veður. „Þannig að þetta er bara mjög fjölbreytt, sem er frábært, og verið er að hugsa um alls konar.“ Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur. mbl.is/ Kristinn Magnússon Blæbrigðin áhugaverð Spurð hvort það sé eitthvað sérstakt sem einkenni íslenska þjóðsagnamenningu og þjóðtrú segir Dagrún: „Það sem er ofboðslega merkilegt er að sögur eru alls staðar og þjóðtrú og þjóðfræði alls staðar líka. Þannig að þetta er svo líka svo frábært tæki til að sameina af því að maður er að segja einhverja sögu og einhver annar í salnum sem kemur bara frá allt öðrum stað í heiminum segir strax bara: já, við segjum líka þessa sögu, en þá er hún aðeins öðruvísi. Þessar sögur þekkjast út um allan heim og þessi trú líka.“ „En það eru þessi blæbrigði sem eru svo ofboðslega áhugaverð, eitthvað sem er öðruvísi á milli staða og af hverju er það þá öðruvísi? Það er líka það sem er áhugavert að ræða þegar við hittumst og komum saman,“ bætir hún við. „Ég pakkaði ekki fyrir sól“ Um fjörutíu Íslendingar sækja ráðstefnuna en aðstandendur hennar hafa nýtt tækifærið til að kynna íslenska menningu fyrir gestum. Í gær héldu ráðstefnugestir til að mynda í plöntuferð til Viðeyjar, skoðuðu handritasýninguna í Eddu og fóru í göngutúr í Nauthólsvík þar sem fjallað var um íslenska sundlaugamenningu. „Þannig að við erum líka einmitt að reyna að kynna fólkið fyrir því sem við erum að gera hér og vonandi verða til einhver spennandi og skemmtileg samstarfsverkefni líka í framhaldinu upp úr því,“ segir Dagrún og bætir við að dagskráin hafi gengið ótrúlega vel. „Okkur finnst við eiginlega vera að gabba þau, þau eru búin að fá svo geggjað veður. Það er búið að vera æðislegt veður á meðan ráðstefnan er í gangi og helsta kvörtunin sem við höfum heyrt er: „Ég pakkaði ekki fyrir sól“.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gríðarlega erfiður dráttur fyrir Vestra Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll „Okkur finnst við eiginlega vera að gabba þau“ Leikur með Japana og Kólumbíumanni Eva Laufey: Ómótstæðilegar vöfflur á 17. júní Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamálinu Mega bíða eftir launagreiðslum frá Saga Film Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Lofaði konunni sinni að taka pásu Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða „Aðdáunarvert hvað þau hjón standa þétt saman“ Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Gríðarlega erfiður dráttur fyrir Vestra Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll „Okkur finnst við eiginlega vera að gabba þau“ Leikur með Japana og Kólumbíumanni Eva Laufey: Ómótstæðilegar vöfflur á 17. júní Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fátíður en sláandi atburður Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver „Það myndast þarna smá vonarglæta“ „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Lofaði konunni sinni að taka pásu Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða „Aðdáunarvert hvað þau hjón standa þétt saman“ Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article