Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verðlagning Nvidia ekki lægri síðan 2019

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Nvidia hefur nú lækkað um 16% frá sögulegu hámarki sem það náði þann 14. maí síðastliðinn. Fjárfestar hafa að undanförnu fært sig úr Nvidia yfir í aðra framleiðendur hálfleiðara (e. semiconductor) þó að félagið sé enn ráðandi á markaðnum. Eftir lækkunina er Nvidia nú verðlagt á 18-faldan væntan hagnað næstu 12 mánaða, samkvæmt Bloomberg . Verðlagning félagsins hefur ekki verið jafn lág síðan snemma árs 2019 og er nú lægra verðlagt en bæði S&P 500-vísitalan og Nasdaq 100. Lægra verðmat endurspeglar þó ekki lakari horfur. Þvert á móti hafa sérfræðingar hækkað hagnaðarspár sínar fyrir næstu ársfjórðunga. Breytingin sýnir fremur að áhugi fjárfesta á gervigreindartengdum hlutabréfum hefur færst til annarra sviða, svo sem framleiðenda minnis- og geymslukubba (e. memory and storage chips) á borð við Micron Technology. Hlutabréf keppinauta á borð við AMD og Intel hafa tvöfaldast til þrefaldast á árinu. „Áherslan hefur færst annað,“ sagði Michael Bailey, greinandi hjá eignastýringafyrirtækinu Fulton Breakefield Broenniman. Fyrirtæki sem fjárfestar hafi borið litlar væntingar til, eins og Micron, hafi nú stolið senunni. Talið er að Nvidia verði með fjórða mesta tekjuvöxtinn af félögum innan S&P 500-vísitölunnar á árinu, en er samt ódýrara en um helmingur fyrirtækja í vísitölunni. Greinendur benda því á að fyrirtækið líti út fyrir að vera undirverðlagt, enda hafi tekjuvöxtur og arðsemi reynst stöðug undanfarin misseri. Eftir meira en 1.100% hækkun frá árslokum 2022 til lok árs 2025 hefur hlutabréfið staðnað. Það hefur hækkað um 5,6% á árinu 2026, á meðan S&P 500-vísitalan hefur hækkað um 9,6%, Nasdaq 100-vísitalan um 16% og hálfleiðaravísitalan í Philadelphia um 74%. Samkeppni frá AMD, Intel og stórum viðskiptavinum Nvidia á borð við Alphabet og Amazon, sem þróa nú eigin flögur í auknum mæli, hefur áhrif á gengi Nvidia. Markaðshlutdeild félagsins á örgjörvamarkaði var um 97% í árslok 2025 samkvæmt gögnum Bloomberg.

Share this article