Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nvidia sækir fram á neyt­enda­markaði

Read Full Article →

Bandaríska tæknifyrirtækið Nvidia kynnti í gær nýjan örgjörva sem ætlað er að auka gervigreindargetu einkatölva. Á vef BBC segir að kynningin marki aukna sókn félagsins inn á neytendamarkaðinn eftir mikinn vöxt af uppbyggingu gagnavera. Jensen Huang, forstjóri Nvidia, kynnti nýja RTX Spark-örgjörvann í aðalræðu sinni fyrir opnun Computex-tækniráðstefnunnar í Taípei í Taívan. Hann sagði að enduruppfinning tölvunnar væri jafn stórt skref og þegar símarnir byrjuðu að þróast yfir í það sem við þekkjum í dag sem snjallsíma. Nýi örgjörvinn mun að sögn Nvidia gera tölvur að virkum samstarfsaðilum notenda frekar en að vera einungis einföld verkfæri. Sjá einnig ESB vill neyðar­vald yfir ör­gjör­va­fram­leiðendum Örgjörvinn verður jafnframt hluti af nýrri kynslóð Windows-tölva frá framleiðendum á borð við Lenovo, HP, Dell, Microsoft Surface, Asus og MSI. Fyrstu tækin eru væntanleg á markað í haust og munu Acer og Gigabyte síðan fylgja í kjölfarið með sínar eigin útgáfur. Kynningin eykur einnig samkeppni á einkatölvumarkaði þar sem fyrirtæki á borð við Apple og Intel hafa lengi verið meðal ráðandi aðila. Samkvæmt greiningarfyrirtækinu Gartner voru Lenovo, HP, Dell og Apple til að mynda samanlagt með nærri 75% af hlutdeild einkatölva á heimsmarkaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.

Share this article