Verð á brent-hráolíu hefur hækkað um meira en 5% eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði frekari samskipti við írönsk yfirvöld vera tímasóun á leiðtogafundi NATO í morgun. Verðið fór yfir 78 dali á tunnu, sem er mesta dagshækkun olíuverðs síðan í maí. Þetta kemur fram í frétt Reuters. Reuters greindi frá því fyrr í vikunni að hráolíubirgðir í neyðarbirgðum Bandaríkjanna væru þær minnstu síðan 1983. Hlutabréfaverð hefur einnig lækkað víða um heim en STOXX 600 vísitalan í Evrópu hefur lækkað um tæp 2% það sem af er degi. Þá hækkaði VIX-flöktvísitalan um 13% en hún mælir óróa og sveiflur á mörkuðum. Ávöxtunarkrafa tíu ára bandarískra ríkisskuldabréfa hækkaði sjöunda daginn í röð og fór í 4,56%, sitt hæsta gildi í mánuð. Í Evrópu náði ávöxtunarkrafa tíu ára þýskra og ítalskra ríkisskuldabréfa einnig mánaðarhámarki. Sjá einnig Trump segir vopnahléi við Íran lokið