Olíuverð hefur lækkað töluvert í dag og náði um tíma sínu lægsta stigi í þrjá mánuði eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að Bandaríkin væru að nálgast samkomulag um að binda enda á stríðsátökin við Íran. Þegar mest lét hafði Brent-hráolía lækkað um 5% og fór niður í 85,80 dali á tunnu. Verðið hefur aðeins rétt úr kútnum og stendur í 87,4 dölum á tunnu þegar fréttin er skrifuð. Trump sagði að lokaatriði samnings við stjórnvöld í Íran hefðu verið samþykkt af báðum aðilum. Það er skýrasta vísbendingin hingað til um að bráðabirgðasamkomulag sé í sjónmáli, sem gæti greitt fyrir siglingum um Hormússund. Viðbrögð markaða á heimsvísu voru jákvæð. Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu hækkuðu um 1% og markaðir vestanhafs tóku einnig við sér. Lækkunin hafi einnig í för með sér lækkun áxöxtunarkrafna á evrópskum skuldabréfum þar sem fjárfestar drógu eilítið úr væntingum um hraðar vaxtahækkanir hjá stærstu seðlabönkum heims. Í Asíu hækkuðu tæknitengdir markaðir mest. Kospi-vísitalan í Suður-Kóreu rauk upp um 4,6% og Nikkei í Japan um 2,8% en miklar væntingar eru um áframhaldandi fjárfestingar í gervigreind og innviðum henni tengdum. Þrátt fyrir bjartsýni eru fjárfestar margir hverjir varkárir og benda á að áður hafi komið fram yfirlýsingar um yfirvofandi samkomulag sem hefðu ekki skilað sér í endanlegu samkomulagi. Sjá einnig Framvirk verð að róast en gera ráð fyrir óróleika