Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vísisskip veiða keilu af krafti og eru komin í stopp

Read Full Article →

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, halda áfram að veiða keilu af krafti. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar þar sem kemur fram að Páll Jónsson hafi landað í heimahöfn í Grindavík í gær og að Sighvatur sé að landa þar í dag. Í himnablíðu úti á Heimsmeistarahrygg „Þetta var sallafínn túr en hann var allur tekinn í himnablíðu úti á Heimsmeistarahrygg. Sex lagnir voru teknar í túrnum og var aflinn tæplega 100 tonn. Meirihluti aflans var keila, en einnig var nokkuð af löngu, karfa, keilubróður og fleiri tegundum. Það var nánast ekkert af þorski í aflanum. Keiluveiðin að undanförnu hefur gengið býsna vel og menn eru vel sáttir og kátir,” er haft eftir Benedikt Jónssyni, skipstjóra á Páli Jónssyni. Þá segir að Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, hafi einnig verið sáttur við veiðina. Veður hið besta þar til í lokin „Við komum í land í gærkvöldi og það er verið að landa í dag. Aflinn er um 60 tonn og um 90 prósent hans er keila. Við tókum fjórar lagnir í túrnum. Byrjað var suður af Selvogsbanka, síðan var haldið suður af Surtsey, þá á Sneiðina og loks endað í Háfadýpinu. Veður var hið besta þar til í lokin en þá var vindurinn 15 – 18 metrar,” segir Aðalsteinn Rúnar á svn.is . Bæði Páll Jónsson og Sighvatur taka nú fimm vikna sumarstopp og segja skipstjórarnir að áhafnirnar séu afar hressar með að fá gott frí.

Share this article