Línuskip Vísis í Grindavík, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa bæði landað í heimahöfn nú í byrjun vikunnar. Páll Jónsson landaði í gær og Sighvatur í morgun. Rætt er við skipstjórana á heimasíðu Síldarvinnslunnar. Kom fram hjá þeim báðum að áhersla væri þessa dagana lögð á að veiða keilu. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að aflinn í veiðiferðinni hefði verið um 100 tonn og væru menn ágætlega sáttir við það. „Rúmlega helmingur aflans var keila en síðan var mest af löngu. Alls voru teknar fimm lagnir í túrnum. Fyrst voru teknar tvær lagnir á Pínulitla banka, síðan ein á Fylkishóli og loks tvær á Sigurfaragrunni. Miðað við árstíma er þetta hinn þokkalegasti afli,” sagði Benedikt. Óli Björn Björgvinsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig sáttur við aflabrögðin. „Við vorum með 85-90 tonn í túrnum og það var langmest keila og síðan langa. Teknar voru sex lagnir. Byrjað var á Eyrinni, sem er 70-80 mílur suðvestur af Grindavík, þá var tekin lögn sunnan við Fjöllin og loks restað á Fjöllunum. Við erum ágætlega sáttir við þennan árangur,” sagði Óli Björn. Páll Jónsson hélt á ný til veiða í gærkvöldi og Sighvatur mun láta úr höfn í kvöld.