Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Línuskip Vísis sækja í keiluna

Read Full Article →

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, leggja nú alla áherslu á keiluveiðar. Páll Jónsson landaði 80 tonnum í heimahöfn í Grindavík í gær og Sighvatur landar 65 tonnum í dag Jónas Ingi Sigurðsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði í samtali við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar að keilan sem veiddist væri hin fínasta og meðalþyngd væri um þrjú kíló. „Við vorum að veiðum í Skerjadýpinu og það gekk ágætlega. Þetta voru fimm lagnir í túrnum og tvær þeirra gáfu 20 tonn sem þykir býsna gott. Við erum mjög sáttir við þessa veiði,” sagði Jónas Ingi. Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, sagði að nú væri öll áhersla lögð á keiluna. „Aflinn hjá okkur er nánast eingöngu keila að þessu sinni. Síðan erum við með dálítið af löngu, keilubróður og karfa. Við byrjuðum á að taka tvær lagnir í Jökuldýpinu og síðan voru þrjár teknar á Selvogsbankanum. Línan er lögð býsna djúpt eða á 700 metrum og jafnvel dýpra. Keilan sem fékkst er hin fallegasta. Nú skal lögð áhersla á keiluveiði og það þarf ávallt að gera á þessum árstíma. Nú er það keilan sem ræður ríkjum hjá okkur,” sagði Aðalsteinn Rúnar. Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lauk.

Share this article