Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Þetta er bara það fallegasta sem hefur gerst“

Read Full Article →

Sannkölluð þjóðhátíðarstemmning var í Noregi í gær eftir sigur Norðmanna gegn Brasilíu á HM karla í fótbolta. Íslendingur sem býr í Ósló segir mikil fagnaðarlæti hafa brotist út um alla borg þegar sigurinn var í höfn. Stemningin hafi verið ólýsanleg. „Ég hef aldrei upplifað annað eins,“ segir Heba Líf Jónsdóttir sem býr í Osló. „Ég horfði á leikinn heima því það er ómögulegt að fá borð eða pláss úti til að sjá leikina. En svo var ég að horfa á leikinn 500 metrum frá Rådhusplassen þar sem 20 þúsund manns voru saman að horfa á leikinn. Þannig að þegar síðustu mínúturnar gengu í garð og leikurinn var flautaður af voru lætin svo gríðarleg að ég varð að fara út. Ég fór út hjá Karl Johan og hjá höllinni og það var bara gleði úti um allt og bærinn var svo sannarlega rauður. Þetta var það magnaðasta sem ég hef séð.“ Heba segir erfitt að fá borð á veitingastað í bænum. Allt sé löngu uppantað. „Við erum vinahópurinn núna með allar klær úti að reyna að fá borð fyrir leikinn á laugardag. En það er ekki mikið komið út ennþá, því einhver var að segja að það bjóst enginn við því að Noregur myndi vinna Brasilíu, þó að Noregur hafi aldrei tapað á móti Brasilíu.“ Borgin eldrauð Spurð segir Heba stemninguna fara fram úr þeirri sem gengur og gerist á þjóðhátíðardegi Norðmanna. „17. maí, þjóðhátíðardagur Noregs, er mjög mjög stór. Og þetta var miklu meira en 17. maí, í minni upplifun allavega. Ef þú ferð í lest eða sporvagn eru allir í rauðri fótboltadragt. Þannig þessi vika hjá mér fer í að reyna að redda mér rauðri dragt, en þær voru uppseldar fyrir löngu.“ Hún geri ráð fyrir annarri eins stemningu á laugardag, þegar Noregur mætir Englandi í átta liða úrslitum. „Þetta er búið að vera alveg ótrúleg vegferð og að sjá samheldnina í norska fólkinu hefur verið ótrúlega skemmtilegt að sjá. Eins og ég sagði, í gær var bara gleði úti um allt og maður varð ekki var við neina slæma dramatík. Þetta er bara það fallegasta sem hefur gerst.“

Share this article