Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Truflar stormur Englandsleikinn? Öllum sagt að finna sér skjól

Read Full Article →

Fólki á Azteca-leikvanginum hefur verið sagt að finna sér skjól og halda kyrru fyrir á Azteca-leikvanginum. Leikur Englands og Mexíkó hefst á miðnætti í 16-liða úrslitum. Ekkert hefur enn verið tilkynnt um frestun, en leikurinn á að fara fram klukkan 18:00 á staðartíma. Uppfært 22:50: Eins og er segir FIFA að leikurinn fari fram samkvæmt áætlun. Næst verður staðan tekin 23:10 á íslenskum tíma. Mikil rigning hefur verið í dag og eldingar hafa verið í nálægð við völlinn. Stuðningsfólk, liðin og fjölmiðlafólk er á vellinum enda um 70 mínútur í leik. Ef eldingar verða nálægt vellinum skömmu áður en á að flauta til leiks verður leiknum frestað. Leikur má ekki hefjast fyrr en 30 mínútur eru liðnar frá því að síðasta elding mældist innan 13 kílómetra radíuss frá leikvanginum. Stormur gæti staðið yfir í nokkrar klukkustundir Engin ákvörðun hefur verið tekin. Sarah Dawkins, fréttakona BBC á svæðinu, segir að regnið dynji á þaki leikvangsins og að greina megi þrumur í nágrenni vallarins. Úrhellisrigning er sem stendur. Tomasz Schafernaker veðurfræðingur BBC telur að stormurinn gæti staðið yfir í nokkrar klukkustundir. Vonast er til að stormurinn fari hjá.

Share this article