Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leik Englands og Mexíkó frestað um klukkutíma

Read Full Article →

Gestum á Azteca-leikvanginum í Mexíkó hefur verið sagt að leita skjóls og halda kyrru fyrir. Leikur Englands og Mexíkó í 16 liða úrslitum hefst á miðnætti. Uppfært 23:14: Leiknum verður frestað til klukkan eitt. Úrhelli hefur verið í dag og þrumuveður í grennd við völlinn. Stuðningsfólk, lið og fjölmiðlafólk er á leikvanginum. Ljóst var að leiknum yrði frestað eldingar yrðu nálægt vellinum rétt áður en átti að flautað yrði til leiks. Hann má ekki hefjast fyrr en 30 mínútur eru liðnar frá því síðustu eldingu innan 13 kílómetra radíuss frá leikvanginum. Stormur gæti staðið í nokkrar klukkustundir Sarah Dawkins, fréttamaður BBC, segir að regnið dynji á þaki leikvangsins og þrumur heyrist í nágrenni við völlinn. Tomasz Schafernaker, veðurfræðingur BBC, vonast til að stormurinn fari hjá en telur að hann geti varað í nokkrar klukkustundir.

Share this article