Kappahl opnaði í dag níundu verslun sína á Íslandi í Firðinum í Hafnarfirði. Um er að ræða rúmlega 400 fermetra verslun sem er jafnframt fyrsta verslun Kappahl hér á landi sem er innréttuð að fullu samkvæmt nýrri hönnunarlínu fyrirtækisins. Í tilkynningu segir að verslunin sé hluti af stækkun og endurnýjun sem nú standi yfir í Firðinum, en þar mun einnig nýtt bókasafn taka til starfa á næstu vikum. „Það er mikil ánægja að opna Kappahl í Firðinum, í sjálfu hjarta Hafnarfjarðar. Fjörður hefur sterka stöðu í bæjarlífinu og með þeirri endurnýjun sem nú á sér stað í miðbænum teljum við þetta frábæran stað fyrir Kappahl,“ segja Albert Þór Magnússon og Lóa Dagbjörg Kristjánsdóttir, sérleyfishafar Kappahl og Newbie á Íslandi. Sjá einnig Nándin flytur í Fjörðinn Verslunin býður upp á fatnað fyrir konur, karla og börn auk undirfatnaðar. Barna- og lífsstílsvörumerkið Newbie verður einnig selt í versluninni.