Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hafa meira en tvöfaldað framleiðslugetuna

Read Full Article →

Kambstál ehf. var stofnað árið 2018 af Árna B. Halldórssyni sem er enn einn af eigendum félagsins. Fyrirtækið var lengst aftil húsa að Íshellu í Hafnarfirði en flutti í janúar 2025 reksturinn í nýtt og glæsilegt húsnæði að Tinhellu 3 í Hafnarfirði. Flutningurinn fól þó í sér gríðarlega breytingu þar sem húsakosturinn jókst úr 1.800 í 3.600 fermetra. Í nýrri verksmiðju hefur framleiðslurýmið tvöfaldast og öll aðstaða hefur verið stórbætt. Að sögn Birgis Arnar Friðjónssonar, framkvæmdastjóra Kambstáls, er nýja verksmiðjan ein af þeim fullkomnustu í Evrópu og fyrirtækið vel í stakk búið að sinna allt að helmingi markaðarins í klippingu og beygingu stáls á Íslandi. Með flutningnum fylgdi einnig veruleg uppfærsla á vélakosti. Í dag starfar fyrirtækið með alls sjö vélar, þar af fjórar frá MEP og þrjár splunkunýjar vélar frá Schnell. Birgir segir að þessar vélar geri fyrirtækinu kleift að klippa og beygja stál af rúllum allt að 20 mm í þvermál, en úr stöngum sé hægt að vinna kambstál allt að 40 mm. „Þetta gerir fyrirtækið í raun það eina á Íslandi sem býr yfir slíkri getu og þá bjóðum við einnig upp á sölu á öllum fylgihlutum fyrir járnabindingar og steypuvinnu, sem styrkir heildarlausnir fyrir verktaka,“ segir Birgir og bætir við að fyrirtækið framleiði einnig kúplingar frá 10 mm og upp í 40 mm sem nýtist á mörgum stöðum. Aukin framleiðsla ár frá ári „Framleiðslan hefur aukist jafnt og þétt ár frá ári. Á síðasta ári nam hún um 8.000 tonnum af stáli og áætlað er að framleiðslan fari yfir 9.000 tonn á yfirstandandi ári,“ segir Birgir. Stærsta einstaka verkefnið á síðasta og þessu ári tengist byggingu vindmyllna í Vaðöldu, þar sem Kambstál sér umað klippa og beygja stál fyrir alls 28 vindmyllur. „Þar er unnið með óvenjustórt stál, aðallega í 25 og 32 mm þykkt, sem nemur um 70%af öllu stálinu í verkefninu. Framleiðslan hófst á síðasta ári og mun standa fram á sumar, líklega fram í júlí.“ Meðal annarra stórra verkefna Kambstáls nefnir Birgir framleiðslu fyrir laxeldisstöð Samherja á Reykjanesi, járnabindingar í Arnarnesbrúna, íbúðir á Heklureitnum, íbúðir við Sigtún og fleiri umfangsmikil mannvirki. Starfsmönnum hjá Kambstáli hefur fjölgað úr 16 í 24 eftir flutninginn og verkefnastaðan fyrir árið er mjög góð að sögn Birgis. Samsetningarþjónusta hefur vaxið hratt Hjá Kambstáli hefur samsetningarþjónusta einnig vaxið hratt og jókst um 30–40% á síðasta ári. Fyrirtækið setur þá saman einingar í verksmiðjunni sem eru fluttar fullkláraðar eða í pörtum á verkstað. Birgir segir að slík þjónusta flýti verulega fyrir framkvæmdum á byggingarstað, auki byggingarhraða og skili beinum kostnaðarsparnaði fyrir verkkaupa. „Aðalkosturinn við að kaupa stálið klippt og beygt er tímasparnaður og gæði og auk þess verða engir afgangar. Þá þarf ekki að setja upp eins stóra vinnuaðstöðu fyrir járnaklippingar á verkstað sem sparar líka talsvert. Þegar allt er tekið inn í myndina er byggingaraðilinn að minnka kostnað með því að fá stálið klippt og beygt,“ segir Birgir. „Við erum með tæknideild sem aðstoðar viðskiptavini við að leysa vandamál við hönnun járnbindingar og sjá fyrir sér þau vandamál sem geta komið upp á verkstað við að leggja járnin. Tæknideildin skilar af sér listum þar sem hvertjárn er merkt inn á teikningu og auðveldar þannig samsetningu á verkstað,“ segir Birgir. Birgir segir að Kambstál leggi áherslu á nýjungar og sjálfbærni. „Á sýningunni verður m.a. kynnt ný lausn fráUnidome, svokallaðar holkúlur í steyptar plötur, sem draga úr steypumagni, minnka kolefnisspor og lækka kostnað. Einnig munum við sýna einangrunarbakka frá Schöck,fylgihluti frá Eurospacers og kúplingar fráDuca Systems og að sjálfsögðu klippt og beygt kambstál,“ segir Birgir að lokum.

Share this article