Hrafnarnir heyrðu ýmislegt forvitnilegt í fyrrgreindu spjalli Kristrúnar við þá Rory Stewart og Alistair Campbell í hlaðvarpinu. Augljóst er að sjálfbirgingsháttur ríkisstjórnarinnar er ekki eingöngu ætlaður heimamarkaði heldur einnig til útflutnings. Þannig segir Kristrún í hlaðvarpinu: „Við erum nú að ljúka því að eyða þeim halla sem fyrri ríkisstjórn skildi eftir sig eftir faraldurinn. Raunar höfum við þegar náð því markmiði.“ Þetta fékk heimsbyggðin beint í æð en ekki fylgdi sögunni að samkvæmt ríkisreikningi var fjárlagahallinn í fyrra ríflega 150 milljarðar og jókst um 100 milljarða milli ára. Þó svo að fjárlög þessa árs geri ráð fyrir halla upp á nokkra tugi milljarða telja flestir sérfræðingar einsýnt að hallinn verði kringum 70 milljarðar á árinu og eins og skuldabréfamarkaðurinn gefur til kynna hafa fæstir trú á að markmið ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög á næsta ári náist. En hafa skal það sem betur hljómar. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 29. júlí 2026.