Heinemann vinnur nú að því að ljúka við endurbætur á fríhafnarverslunum Keflavíkurflugvallar. Undirbúningur hófst í janúar í fyrra en þýska fyrirtækið tók við rekstri verslananna í byrjun maí með átta ára samningi, með möguleika á tveggja ára framlengingu. Liam Grundy, framkvæmdastjóri Heinemann á Íslandi, segir í samtali við Viðskiptablaðið að endurbætur á komufríverslun Keflavíkurflugvallar verði kláraðar í júlí og verður brottfararverslunin síðan tilbúin í ágúst. Samhliða því stefnir Heinemann á að halda stóra opnunarhátíð á Keflavíkurflugvelli í september þar sem félagið mun fagna ferlinu og einnig kynna nýjar vörur sem hafa áður ekki verið fáanlegar á Íslandi. „Þegar við tókum við rekstrinum sáum við fljótt hversu stórt hlutverk tollfrjálsar verslanir spila í íslenskri menningu. Það er til dæmis mikið fjallað um tollfrjálsa verslun í fjölmiðlum sem er ekki endilega raunin í öðrum löndum.“ Sjá einnig Heinemann tekur við Fríhöfninni á miðvikudaginn Liam segir að megináhersla Heinemann hafi verið að byggja upp traust og var til að mynda tekin ákvörðun um að hækka ekki vöruverð fyrstu níu mánuðina til að sýna að markmiðið væri að bjóða upp á lágt verð, gott vöruúrval og upplifun frekar en að græða á háu verðlagi. „Við erum nú komin langt með endurbætur en fríverslunin við komuhliðið er til dæmis 85% fullkláruð. Um leið og farþegar ganga þar inn sjá þeir líka mikla áherslu lagða á íslenskar vörur en með því viljum við veita innlendum framleiðendum lyftistöng.“ Lærdómur og áskoranir Liam segir að upphafstímabilið hafi ekki verið án áskorana og bætir við að Ísland sé einnig mjög sérstakur markaður. Þetta hafi jafnframt verið í fyrsta sinn sem íslensk tollfrjáls verslun hafi verið rekin af erlendum aðila. „Það komu til dæmis upp birgðavandamál en það hafði meira að gera með aðlögunarferlið. Við vorum með fleiri þúsund vínflöskur sem sátu við Reykjavíkurhöfn og biðu eftir að komast í verslanirnar. Þegar það kom upp lærðum við af þeirri reynslu og nú er það ekki lengur vandamál.“ Heinemann tók einnig eftir því að Íslendingar eru með öðruvísi smekk þegar kemur að víntegundum en Liam segir til dæmis að ítalskt pinot-grigio sé mun vinsælla hér á landi en í öðrum verslunum Heinemann. Sjá einnig Heinemann dæmt til að greiða 3,4 milljarða vegna samráðs „Við viljum leggja áherslu á þjálfun starfsmanna og þá sérstaklega þegar kemur að vínþekkingu. Komuverslunin verður til dæmis með nýjan smakkbar þar sem vínfræðingar geta hjálpað fólki að velja sér víntegundir. Það er líka svo gaman fyrir fólk sem veit kannski lítið um vín að kynnast nýrri tegund og deila svo flöskunni með vinum þegar það kemur heim.“ Liam segir að meginmarkmiðið sé að standa vörð um að fríhafnarverð skili sér til neytenda og að gera upplifun viðskiptavina það góða að farþegar kjósi frekar að versla vörur við Keflavíkurflugvöll, jafnvel þó að sömu vörurnar séu fáanlegar í London eða á Spáni. „Við viljum vera dugleg að skila góðri þjónustu svo að fólk versli hér. Það er öllum til bóta, bæði fyrir Heinemann og íslenska hagkerfið.“