Sænska tískuvörumerkið Kappahl hefur nú lokið opnun á átta verslunum á Íslandi á sextán dögum en uppbyggingin hófst 14. mars með opnun í Smáralind. Verslanir nr. 7 og 8 opnuðu í Kringlunni fyrir helgi og á Egilsstöðum í gær. Á þessu tímabili hefur verið opnuð ein verslun á tveggja daga fresti sem telst afar óvenjulegur hraði í uppbyggingu smásöluverslana. Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Kappahl og Newbie á Íslandi, segir að uppbyggingin hafi verið umfangsmikil og hafi krafist samstarfs frá starfsfólki, samstarfsaðilum og umbjóðendum. „Það eru páskar framundan sem gefa okkur tækifæri til að ná áttum, líta yfir farinn veg og fagna upprisunni bæði í bókstaflegri og táknrænni merkingu.“