Þetta var afar auðvelt fyrir Spánverjana sem unnu sinn fyrsta leik í útsláttarkeppni frá því að liðið varð heimsmeistari árið 2010. Spánn vann 3-0 sigur og stýrði förinni allan leikinn. Öll þrjú mörkin komu eftir fyrirgjöf vinstra megin. Oyarzabal skoraði fyrsta markið er hann kláraði fyrirgjöf Cucurella vel á 36. mínútu. Spánverjarnir leiddu 1-0 í hálfleik. Pedro Porro gerði svo nánast út um leikinn með skallamarki eftir fyrirgjöf Alex Baena á 66. mínútu. Oyarzabal rak svo smiðshöggið með marki sem var afar líkt því fyrsta. Cucurella fann Oyarzabal í miðjum teignum og hann kláraði vel. Eini munurinn frá fyrsta markinu var að Baskinn var aleinn í teignum í seinna markinu. Spánverjar eru því komnir í 16-liða úrslit og mæta sigurvegaranum úr einvígi Króatíu og Portúgals sem fer fram í kvöld.