Þetta var afar öruggt. Spánverjar komu sér í 4-0 forskot í upphafi seinni hálfleiks og slökuðu bara á. Þeir vildu ekki eyða of mikilli orku í þetta. Sádi-Arabía ógnaði spænska markinu nánast ekki neitt. Lamine Yamal skoraði sitt fyrsta mark á HM og Oyarzabla skoraði svo tvö. Staðan var 3-0 í hálfleik og de la Fuentes, þjálfari Spánar, var svo öruggur með stöðuna að hann tók markaskorarana tvo út af. Fjórða markið var sjálfsmark eftir skot Cucurella. Spánverjar eru með meirapróf í stórmótum og voru ekkert að stressa sig á framhaldinu. Eins og staðan er núna mæta Spánverjum Austurríkismönnum í 32-liða úrslitum. Spánn 67,1% - Sádar 32,9% Skot : Spánn 22 - Sádar 3 Snertingar í teig Spánn 36 - Sádar 2