Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrsti sigur Spánverja í útsláttarkeppni frá heimsmeistaratitlinum 2010

Read Full Article →

Spánn vann 3-0 sigur gegn Austurríki í 32-liða úrslitu HM. Spánn stýrði förinni allan leikinn. Öll þrjú mörkin komu eftir fyrirgjöf vinstra megin. Spánverjar unnu sinn fyrsta leik í útsláttarkeppni frá því að liðið varð heimsmeistari árið 2010. HM 2014: Út í riðlakeppni HM 2018: Út í 16-liða úrslitum gegn Rússum HM 2022: Út í 16-liða úrslitum gegn Marokkó Oyarzabal skoraði fyrsta markið er hann kláraði fyrirgjöf Cucurella vel á 36. mínútu. Spánverjarnir leiddu 1-0 í hálfleik. Pedro Porro gerði svo nánast út um leikinn með skallamarki eftir fyrirgjöf Alex Baena á 66. mínútu. Oyarzabal rak svo smiðshöggið með marki sem var afar líkt því fyrsta. Cucurella fann Oyarzabal í miðjum teignum og hann kláraði vel. Eini munurinn frá fyrsta markinu var að Baskinn var aleinn í teignum í seinna markinu. Oyarzabal er nú með fjögur mörk og er jafn Dembele, Sarr og Vinicius. Fyrir ofan hann er Mbappe og Messi með sex og þeir Haaland og Kane með fimm. Spánverjar eru því komnir í 16-liða úrslit og mæta sigurvegaranum úr einvígi Króatíu og Portúgals sem fer fram í kvöld. Mörkin : Spánverjar unnu leik í útsláttarkeppni heimsmeistaramóts karla í fótbolta í fyrsta sinn frá því að liðið varð heimsmeistari árið 2010. Spánn vann Austurríki nokkuð auðveldlega, 3-0, í 32-liða úrslitum.

Share this article