Ísland Duty Free hefur tekið upp vildarkerfi Heinemann x ME í verslunum sínum við Keflavíkurflugvöll. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heinemann en um er að ræða fyrsta vildarkerfið sem er tekið í notkun í fríhafnarverslun á Íslandi. Punktasöfnun nær einnig til annarra starfsstöðva Heinemann erlendis, þar á meðal á flugvöllum í Þýskalandi, Noregi, Danmörku og annars staðar. Á meðal þeirra fríðinda sem fylgja eru sértilboð fyrir vildarkortshafa á áfengi og segir Heinemann að ný áfengistilboð verði í boði í hverjum mánuði. Tilboð á sælgæti og snyrtivörum verða einnig í boði en ekki verður þó hægt að nota punkta til að kaupa tóbak eða lyf. Sjá einnig Ísland Duty Free opnar netverslun með áfengi Í fyrirspurn Viðskiptablaðsins segir Heinemann að hægt verði að safna stigum fyrir allar vörur sem keyptar eru í fríhöfninni. Vildarkortshafar fá einnig 1.500 króna afmælisgjöf í formi punkta ef verslað er fyrir sjö þúsund krónur eða meira.