Innlent | Morgunblaðið | 19.2.2026 | 12:46 Rekstur dýrari og reglur flóknari mbl.is/Egill Aaron Forsvarsmenn Ísland Duty Free, sem þýska fyrirtækið Heinemann rekur á Keflavíkurflugvelli, eru ósáttir við umfjöllun Morgunblaðsins um verð á áfengi í fríhöfninni. Umfjöllunin byggðist á könnun sem Félag atvinnurekenda (FA) gerði á verði þar á bæ og samanburði við fríhöfnina á Alicante. Í athugasemdum Ísland Duty Free, sem sendar voru frá nafnlausu netfangi almannatengsladeildar auglýsingastofu, kemur fram að þótt verð á umræddum vörum hafi mælst hærra hér þá hefði auðveldlega verið hægt að velja aðrar vörur af handahófi og niðurstaðan getað orðið önnur. Tekin eru dæmi af áfengistegundum sem fyrirtækið staðhæfir að séu ódýrari hér en á Alicante. Staðhæft er í yfirlýsingunni að umfjöllun blaðsins gefi „ranga mynd“ af verðlagi í verslunum Ísland Duty Free. Rétt er að geta þess að Morgunblaðið fjallaði nýverið einnig um verðlag á sælgæti í fríhöfninni og bar saman við verð í lágvöruverslunum á Íslandi. Óánægju var sömuleiðis lýst yfir með þá umfjöllun. Í athugasemdunum segir enn fremur að val á fríhöfninni á Alicante til samanburðar veki spurningar, enda séu aðstæður í löndunum tveimur mjög ólíkar. Laun séu hærri á Íslandi, ríflega tvöfalt fleiri farþegar fari um fríhöfnina á Alicante, sem skapi hagkvæmni í rekstri, skattaumhverfi á Spáni sé annað og álögur á áfengi með þeim lægstu sem þekkist í Evrópu. „Fyrir utan mismunandi skatta- og markaðsumhverfi þá kostar meira að reka flugvöll á Íslandi en á Spáni, reksturinn dýrari og regluverkið miklu flóknara,“ segir í athugasemdunum. Frétt af mbl.is Verðið allt að 67% hærra hér Þá hafnar Ísland Duty Free fullyrðingum, sem hafðar voru eftir Ólafi Stephensen framkvæmdastjóra FA, þess efnis að félagið starfi án alls eftirlits. „Reksturinn á Keflavíkurflugvelli var boðinn út í opnu og alþjóðlegu útboðsferli. Slíkt útboð felur í sér samkeppni um réttinn til rekstursins, þar sem skýrar kröfur eru gerðar um þjónustu, verðstefnu, fjárfestingar og gæði. Samningurinn er bundinn skilmálum og undir eftirliti Isavia.“ Frétt af mbl.is Verðið oft hærra í fríhöfninni en í Bónus Frétt af mbl.is „Getum ekki alltaf verið ódýrust“ Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér „Maður heldur að svona gerist ekki“ Rekstur dýrari og reglur flóknari Modric hvergi nærri hættur „Hann var aldrei prins“ Photos: Ash Wednesday fun at Smáralind Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Pútín, konur og greiðar: Rússatengsl Epsteins Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld „Dóttir þín lifir ekki lengur“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Tvöföld veikindi hjá því opinbera Ólögleg sala fálka: „Ekki taka þátt í þessum gráa leik“ Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum „Maður heldur að svona gerist ekki“ Rekstur dýrari og reglur flóknari Modric hvergi nærri hættur „Hann var aldrei prins“ Photos: Ash Wednesday fun at Smáralind Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Veita undanþágur vegna líkbrennslu „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Samfylkingin ekki lengur stærst Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Ætla að lýsa Eurovision beint úr Efstaleiti Umferðarslys við Rauðavatn í nótt Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Tvöföld veikindi hjá því opinbera Ólögleg sala fálka: „Ekki taka þátt í þessum gráa leik“ Piparúðanum var beitt í Neðra-Breiðholti Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Telur skólann vera að bregðast syni sínum Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum