Innlent | Morgunblaðið | 2.7.2026 | 8:00 Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Samningar ríkisins og borgarinnar um uppbyggingu á ríkislóðum í borginni var undirritaður með viðhöfn að viðstöddum fjölmiðlafólki. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Það hvarflaði ekki að mér að sá skilningur yrði lagður í málið, en ef Reykjavíkurborg vill skoða málið þá gerir hún það. Við teljum þessa samninga fullkomlega eðlilega,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í samtali við Morgunblaðið þegar leitað var viðbragða hans við því áliti borgarlögmanns að nýgerðir samningar borgarinnar og ríkisins um húsnæðisuppbyggingu á ríkislóðum kynnu að fela í sér ólögmætan ríkisstuðning. Fullyrt er að fyrrverandi borgarstjóri, Heiða Björg Hilmisdóttir, hafi vitað um hið meinta ólögmæti en álit borgarlögmanns var hvorki kynnt fulltrúum ríkisins né í borgarráði áður en samningarnir voru undirritaðir. Fram hefur komið að álit borgarlögmanns hafi fyrst verið kynnt á fundi í borgarráði fyrir réttri viku, en þá voru liðnar fjórar vikur frá því að samningur borgarinnar og ríkisins var undirritaður á fundi með fjölmiðlum. Því hefur verið haldið fram að Heiða Björg hafi komið í veg fyrir að álitið yrði lagt fram með öðrum gögnum málsins þegar samningarnir voru samþykktir í borgarráði. Þá er og fullyrt að umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar hafi varað við gjörningnum. Morgunblaðið hefur ítrekað reynt að ná sambandi við Heiðu Björgu vegna þessa máls, en hún hefur ekki svarað. Ragnar Þór settist á fund með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra sl. þriðjudag þar sem rædd var sú staða sem upp er komin. Fram kom á fundinum að borgin myndi skoða málið. „Fundurinn sem slíkur var uppbyggilegur og góður,“ segir Ragnar Þór sem telur að ríki og borg séu samstiga um nauðsyn þess að hraða uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í borginni. „Samningarnir sem við gerðum voru mjög umfangsmiklir, en þar undir voru líka lóðaskiptasamningar þar sem borgin og ríkið skiptust á ríflega 20.000 fermetrum af landi. Borgin vill rýna þetta mál og það er þeirra að gera það,“ segir hann. Á ekki að valda töfum Spurningu hvort hann telji að sú staða, sem upp er komin, geti leitt til tafa á uppbyggingu á umræddum lóðum svarar Ragnar Þór á þann veg að það hafi verið eitt þeirra atriða sem rædd hafi verið á fundi hans með Hildi Björnsdóttur borgarstjóra. „Þessi afstaða hins nýja meirihluta í borginni ætti ekki að tefja framgang mála og frekari húsnæðisuppbyggingu. Ég held að við Hildur borgarstjóri séum sammála um að það megi ekki gerast og ég held að það sé heldur ekki markmiðið. Við viljum flýta uppbyggingu eins og kostur er og róa að því öllum árum að ekki komi til frekara bakslags í byggingariðnaðinum,“ segir Ragnar Þór. Aðspurður vill Ragnar Þór ekki tjá sig um það ráðslag Heiður Bjargar fyrrverandi borgarstjóra að gera ekki uppskátt um álit borgarlögmanns um að samningarnir fælu mögulega í sér ólögmætan ríkisstuðning. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í Morgunblaðinu í gær að álit borgarlögmanns hefði komið sér á óvart, og að hann hafi ekki vitað af því fyrir gerð samningsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Mikill skellur fyrir Bandaríkin Ný gerð laxateljara sett upp í Hofsá Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Aðsend grein: Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ekki vekja athygli á þér, ekki monta þig“ „Að fá A er eitthvað sem er framúrskarandi“ Búseta og bakgrunnur hafa áhrif ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Greinilega mikið ósamræmi „Fannst ég geta gert hlutina betur“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Fjölga bílastæðum við Háafoss eftir nýfundna frægð Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Nýjast á mbl.is » Miklar launahækkanir og verðbólga fylgjast að Mikill skellur fyrir Bandaríkin Ný gerð laxateljara sett upp í Hofsá Telur lóðasamninga fullkomlega eðlilega Aðsend grein: Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Umræðan Tár, bros og tollar Við bætum lífskjörin með bættri samkeppnishæfni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greinilega mikið ósamræmi Efna til ESB-rökræðna í ágúst: Eftirspurnin mikil Ráðherra var ekki upplýstur um álitið Slysið á Eir á borði rannsóknardeildar lögreglu Mest lesið Í gær Í vikunni Karlmenn feimnari við skolun afturendans Steiktar frænkur í Kaupmannahöfn Harma ójafnræðið: Sitja ekki við sama borð ESB-aðild væri slæm fyrir hótel Hálfgert haustveður á vestanverðu landinu Greinilega mikið ósamræmi „Fannst ég geta gert hlutina betur“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Fjölga bílastæðum við Háafoss eftir nýfundna frægð Féll fram af svölum og lést Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Lögreglan lýsir eftir Cezary Kobiela Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Róbóti pakkar 60 þúsundum pinnum á dag Ekki búsettir hér á landi „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Ósamræmið „algjörlega augljóst“ Lokuðu umferðargötu vegna manns með skotvopn Uppsagnir á Bifröst Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Féll fram af svölum og lést Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Myndskeið: Stærðarinnar rotta á vappi í Vesturbæ Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið