Innlent | Morgunblaðið | 30.6.2026 | 10:15 Segir sjálfsagt að skoða málið Samningur ríkis og borgar var undirritaður fyrir kosningar. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki „Það hefur verið reynt að semja við ríkið um uppbyggingu á þessum lóðum árum saman og mér skilst að markmiðið hafi náðst með samningunum. Borgarlögmaður var með í ráðum í samningunum en samkvæmt þessu flaggar hann því að þetta þurfi að skoða sérstaklega. Nú er verið að gera það og það er ágætt,“ segir Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn Reykjavíkur, í samtali við Morgunblaðið. Viðbragða hans var leitað við þeim tíðindum að álit borgarlögmanns um að samkomulag borgarinnar og ríkisins um uppbyggingu á ríkislóðum fæli hugsanlega í sér ólöglega ríkisaðstoð. Heimildir blaðsins herma að Heiðu Björgu Hilmisdóttur, þáverandi oddvita Samfylkingarinnar og borgarstjóra, hafi verið kunnugt um þetta álit borgarlögmanns en ekki gert neitt með það og undirritað samninginn við ríkið allt að einu. Samningurinn var síðan kynntur með viðhöfn skömmu fyrir borgarstjórnarkosningar. Álitið var loks kynnt í borgarráði sl. fimmtudag, en fullyrt er að Heiða Björg hafi komið í veg fyrir að það yrði lagt fram með gögnum málsins þegar borgarráð samþykkti téðan samning á sínum tíma. Pétur segir að nú sé verið að skoða málið, sem sé ágætt, enda séu margar lóðir undir, en hann segir að sér sé tjáð að málið standist alla skoðun. Spurður hvort ekki hefði verið réttara að skoða málið áður en samningurinn var undirritaður, þar sem óvissa um lögmæti lá þá þegar fyrir, segir Pétur að sett hafi verið út á tvennt. Annars vegar byggingamagn á lóðunum og hins vegar hvort samningurinn standist skoðun hvað varðar óeðlilegan ríkisstuðning. Hann segir að lögmenn hafi komið að samningunum, hann hafi ekki gert það sjálfur. Um hvort eðlilega hafi verið að málum staðið segir Pétur: „Ég ætla ekki að taka undir það að einhverju hafi verið stungið undir stól. Ég var ekki á staðnum en fagnaði þessum samningum á sínum tíma, en það er sjálfsagt að skoða málið og það verður gert.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Segir sjálfsagt að skoða málið Ný stjórn rekstrarfélags Kringlunnar Láta van Dijk gjörsamlega heyra það Matvælaverð lækkaði um 10% Stórleikur Ásthildar í þriðja sigri Íslands í röð Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Banna frímúrurum að verða kaþólikkar Samgöngurnar verið betri í sumar Trump fær ekki að reka Cook Áliti borgarlögmanns stungið ofan í skúffu Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna frímúrurum að verða kaþólikkar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ „Þetta eru spennandi tímar“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda Nýjast á mbl.is » Segir sjálfsagt að skoða málið Ný stjórn rekstrarfélags Kringlunnar Láta van Dijk gjörsamlega heyra það Matvælaverð lækkaði um 10% Stórleikur Ásthildar í þriðja sigri Íslands í röð Umræðan Allt of dýr lán Hyggst ekki semja um sjávarútveginn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Segir sjálfsagt að skoða málið Átti erfitt með að horfa á upptökuna Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Mest lesið Í gær Í vikunni Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna frímúrurum að verða kaþólikkar Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Andlát: Halldór Haraldsson Gefur lítið fyrir „anti everything-liðið“ „Þetta eru spennandi tímar“ Öskjuhlíðartré efniviður í nýja þorpinu Gagnaleki héraðssaksóknara rannsakaður Sváfu hvorki né borðuðu í tvo sólarhringa Skuldar þjóðinni skýringar Víðtæk kerfisvilla hjá Skattinum Skörp skil: „Við erum ekki sátt með þetta svona“ Margrét Kristín skipuð lögreglustjóri Spurðu um fugla og hvali í Drangeyjarleiðangri Slysið varð í brattri hlíð Þór fylgir Bandero eftir vestur af landinu Sex sóttu um embætti lögreglustjóra Skúli ekki sloppinn: Hæstiréttur vill síðasta orðið Íslenskar konur ganga Jakobsveginn í 40 stiga hita Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Vita ekki hverjir skulda