Borgarráð samþykkti í gær að skipa samninganefnd til þess að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða, sem borgin samdi við á árunum 2021-2022, um framtíð lóðanna og endurgjald á markaðsvirði fyrir aukinn og breyttan byggingarrétt lóðanna, ásamt nýjum lóðarleiguréttindum. Þetta kemur fram í fundargerð borgarráðs. Óttar Pálsson verður formaður nefndarinnar. Starfshópnum ber að skila tillögum fyrir lok 1. nóvember næstkomandi. Í greinargerð með tillögunni er vísað til þess að Innri endurskoðun og ráðgjöf Reykjavíkurborgar (IER) kynnti í október síðastliðnum úttekt um samningaviðræðurnar við rekstraraðila og lóðarhafa bensínstöðvarlóða. Samhliða samþykkti borgarráð að vísa 12 úrbótatillögum IER í úttektinni til sviða og skrifstofa innan Reykjavíkurborgar til frekari málsmeðferðar. Fyrsta úrbótattillagan fól í sér að borgarlögmanni yrði falið að meta lagalega hvort samkomulög borgarinnar við rekstraraðila og lóðarhafa bensínstöðvalóða samrýmist reglum um samkeppni og ríkisaðstoð. „Í kjölfar slíkrar greiningar skuli taka afstöðu til þess hvernig niðurstöðurnar kunna að hafa áhrif á ákvarðanir um frekari uppbyggingu á þeim bensínstöðvalóðum þar sem veittar ívilnanir hafa ekki enn komið til framkvæmda.“ IER telji hin sérstöku samkomulög við lóðarhafa ekki hafa falið í sér endanlegar ákvarðanir um uppbyggingu eða byggingarheimildir og því hafi flest samkomulögin ekki enn leitt til ívilnana sem kynnu að brjóta gegn reglum um ríkisaðstoð eða jafnræði. „Þó er bent á að samkomulögin hafi gengið skemur en samningsmarkmiðin gerðu ráð fyrir og einnig hafi skort lagalegar greiningar á mögulegri ívilnun, sérstaklega í þeim tilvikum þar sem samið var um breytta nýtingu á bensínstöðvalóðum sem voru með útrunna samninga.“ Samfylkingin óttast áframhaldandi rekstur bensínstöðva Borgarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar lögðu fram bókun þar sem þeir segjast ekki leggjast gegn skipun samninganefndar til að tryggja fullt samræmi við ríkisaðstoðarreglur EES. Þeir viðra hins vegar áhyggjur af því að ef kröfur borgarinnar verði óraunhæfar þá gætu olíufélögin nýtt gildandi langtímasamninga sína og haldið áfram rekstri stöðvanna á óbreyttum forsendum.