Innlent | mbl | 25.6.2026 | 19:30 | Uppfært 19:52 Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Bensínstöðvarmálið vindur upp á sig. Nú hefur Reykjavíkurborg sett á laggirnar samninganefnd til að klóra í bakkann vegna lóðasamninga sem gerðir voru í borgarstjóratíð Dags B. Eggertssonar. Samsett mynd Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Hugmyndafræði sem kjósa þurfi út Segir ársreikninginn eiga að vera viðvörun Allir sögðu nei nema Heiða Björg Dýrkeypt veikindahlutföll Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran » Fleiri tengdar fréttir Borgarráð samþykkti í dag að skipa samninganefnd sem á að semja við lóðarhafa bensínstöðvalóða um framtíð lóðanna. Ákvörðunin er tekin í kjölfar úttektar Innri endurskoðunar á hinu svokallaða bensínstöðvarmáli. Nefndin á að ræða við olíufélög og aðra lóðarhafa um hvernig megi byggja upp lóðirnar þegar bensínstöðvar víkja. Jafnframt á hún að semja um greiðslur til Reykjavíkurborgar fyrir aukinn byggingarrétt og ný lóðarleiguréttindi. Tillagan var samþykkt á fundi borgarráðs í dag . Fulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá. Á fundinum var einnig farið yfir hvernig gengur að hrinda í framkvæmd úrbótum sem Innri endurskoðun lagði til eftir að hafa farið yfir samningaviðræður borgarinnar um bensínstöðvalóðir í tíð Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra. Frétt af mbl.is Fjaðrafok í ráðhúsi vegna skýrslu Brot á reglum um ríkisaðstoð Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að samninganefndin hafi verið sett á laggirnar í kjölfar lögfræðilegrar rýni borgarlögmanns á því hvort reglur um ríkisaðstoð hafi verið brotnar við samningagerðina. Rýnin var í samræmi við tillögur Innri endurskoðunar, sem lagði fram úrbótatillögur í kjölfar bensínstöðvarmálsins í október síðastliðnum. Niðurstaða borgarlögmanns var kynnt á fundinum í dag. „Það ríkir trúnaður um kynningu borgarlögmanns, enda er þar farið rækilega yfir samnings- og réttarstöðu Reykjavíkurborgar. En við getum sagt að niðurstaðan bendi til þess að samningarnir hafi falið í sér brot á reglum um ríkisaðstoð og samkeppni. Það leiddi til þess að okkur var ráðlagt að skipa sérstaka samninganefnd sem fer í það verkefni að semja við lóðarhafana upp á nýtt um eðlilegt endurgjald fyrir þau verðmæti sem þeir fengu í hendur,“ segir Hildur. Formaður samninganefndarinnar verður Óttar Pálsson. Frétt af mbl.is Íbúðir á lóð bensínstöðvar í Mjóddinni Gagnrýndi verklagið Bensínstöðvarmálið snýst um samkomulög sem Reykjavíkurborg gerði við olíufélög á árunum 2021 og 2022. Markmiðið var að flytja eða leggja niður bensínstöðvar á ákveðnum svæðum til að rýma fyrir íbúðabyggð og annarri uppbyggingu. Málið varð umdeilt vegna þess að spurningar vöknuðu um hvort olíufélögin fengju verðmæti í formi aukins byggingarréttar án þess að borgin fengi fullt endurgjald fyrir þau. Innri endurskoðun fór því yfir málið og skilaði skýrslu í október í fyrra. Þar var ekki gerð athugasemd við markmið samninganna en verklag borgarinnar var gagnrýnt og lagðar fram tólf tillögur að úrbótum. Meirihluti borgarráðs segir skipun samninganefndarinnar vera lið í því að fylgja þessum tillögum eftir. Lögð er áhersla á að samningaviðræður fari fram eftir skýru verklagi og í samræmi við reglur um samkeppni og ríkisaðstoð. Frétt af mbl.is Hugmyndafræði sem kjósa þurfi út Vilja raunhæft mat Í bókun Samfylkingarinnar um málið segir að lagaleg yfirferð hafi staðfest að fyrri samkomulög hafi verið í samræmi við tilmæli Samkeppniseftirlitsins. Fulltrúarnir segja jafnframt mikilvægt að nýja samninganefndin meti verðmæti lóðanna með raunhæfum hætti. Frétt af mbl.is Bensínstöðvum í Reykjavík mun fækka um þriðjung Þeir benda á að taka verði tillit til kostnaðar við hreinsun mengaðs jarðvegs og þess tekjutaps sem olíufélögin verði fyrir ef stöðvum verði lokað fyrr en áætlað var. Annars gætu félögin ákveðið að halda áfram rekstri bensínstöðvanna á grundvelli gildandi samninga. Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Hugmyndafræði sem kjósa þurfi út Segir ársreikninginn eiga að vera viðvörun Allir sögðu nei nema Heiða Björg Dýrkeypt veikindahlutföll Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Breiðablik - Víkingur R., staðan er 0:1 Sendir Eurovision-hetju kaldar kveðjur eftir skilnað Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Misstigu sig í toppbaráttunni Stúlkan er komin í leitinar Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki ástæða til að aðhafast í máli Páls Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Stærsti skjálftinn í meira en öld Segja þyrlu á Akureyri skipta sköpum Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Fimm sóttu um embættið Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Breiðablik - Víkingur R., staðan er 0:1 Sendir Eurovision-hetju kaldar kveðjur eftir skilnað Bensínstöðvarsamningar sagðir lögbrot Misstigu sig í toppbaráttunni Stúlkan er komin í leitinar Umræðan Matvælaverð og grænir skógar Hámörkum verðmæti hafsins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þáði hærri laun en Vilhjálmur „Áhyggjuefni“ hvað verður fyrir niðurskurðarhnífnum „Til hvers að vera með áætlun?“ Svara kalli kjósenda á Suðurlandsbraut Mest lesið Í gær Í vikunni Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Rúður sprungu í 400 gráðu hita Öllum upplýsingafulltrúum sagt upp Synjaði umdeildu deiliskipulagi á Suðurlandsbraut Neita því að hafa ætlað sér að drepa manninn Lífshætta getur skapast á augnabliki Myndin sem setti Noreg á hliðina Lúmskt algengir sjúkdómar Innkalla 4 tegundir Land Rover bíla Fimm sóttu um embættið Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Lögreglan lýsir enn eftir Ernu Mætti ekki til vinnu frá Íslandi Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Hola í höggi í fjórða skipti Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Andlát: Þráinn Eggertsson „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn