Landhelgisgæsla Íslands er 100 ára í dag, 1. júlí. Að því er segir af þessu tilefni á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar má rekja stofnun hennar til þess þegar björgunarskipið Þór var keypt til landsins fyrir tilstuðlan stórhuga frumkvöðla í Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Þegar öll sund hafa virst lokuð „Þann 1. júlí árið 1926 eignaðist ríkissjóður Íslands skipið og við þann dag hefur stofndagur Landhelgisgæslunnar verið miðaður. Skömmu áður kom til landsins fyrsta varðskipið sem smíðað var fyrir Íslendinga. Það var gufuskipið Óðinn, 512 brúttólesta skip, vopnað tveimur 57 mm fallbyssum. Eitt mikilvægasta hlutverk Landhelgisgæslunnar er að tryggja öryggi á hafsvæðinu umhverfis Ísland og starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur í heila öld verið reiðubúið til þess að vera til taks fyrir sjófarendur og landsmenn alla, oft við krefjandi kringumstæður þegar öll sund hafa virst lokuð,“ segir á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar. Afrek áhafna varðskipanna í Þorskastríðunum gleymist aldrei Þá segir að saga Landhelgisgæslunnar geymi frækin og merkileg augnablik. Hin eftirminnilegu afrek áhafna varðskipanna í Þorskastríðunum gleymist aldrei. Bent er á að á heimasíðu Landhelgisgæslunnar, lhg.is , megi finna tímalínu þar sem hægt sé að fræðast um sögu stofnunarinnar með lifandi hætti. Verkefnalistinn breyst mikið „Hlutverk Landhelgisgæslunnar hefur á þessum 100 árum vaxið og tekið miklum breytingum. Sem dæmi um það ber Landhelgisgæslan ábyrgð á framkvæmd varnartengdra verkefna í umboði utanríkisráðuneytisins sem hefur gert stofnuninni kleift að byggja upp öfluga stöðumynd af loftrýminu og hafsvæðinu sem hefur eflt getu stofnunarinnar til eftirlits og stuðlað að auknu þjóðaröryggi. Einnig er vert að minnast þeirra afreka sem starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur unnið í störfum sínum á Miðjarðarhafi við björgun þúsunda mannslífa og við þjálfun úkraínskra sprengjusérfræðinga í Litháen,“ segir á Facebook-síðunni. Væri ekkert án starfsfólksins Rakið er að Landhelgisgæsla Íslands hafi aldrei verið jafn vel tækjum búin og hún sé í dag. Varðskipin Þór og Freyja, sjómælingaskipið Baldur, aðgerðabátarnir Óðinn, Týr og Ægir, eftirlitsflugvélin TF-SIF og þyrlurnar TF-GRO, TF-EIR og TF-GNA hafi sannað sig með afgerandi hætti. „Þá væri Landhelgisgæslan ekkert án starfsfólksins sem hefur lagt líf og sál í störf sín síðustu 100 ár.“ Hátíðarhöld í Eyjum úr skorðum vegna hvalveiðideilu „Á 100 ára afmælisdegi Landhelgisgæslunnar þökkum við landsmönnum það traust sem þeir hafa sýnt okkur og munum við áfram leggja metnað í að vinna af kostgæfni fyrir land og þjóð. Til stóð að fagna aldarafmælinu með táknrænum hætti í Vestmannaeyjum í dag en verkefni Landhelgisgæslunnar eru ætíð í forgangi og 100 árunum verður fagnað með viðeigandi hætti síðar á árinu,“ segir á Facebook-síðu Landhelgisgæslunnar sem er og hefur verið til taks í 100 ár. Hér má lesa viðtal úr síðasta sjómannadagsblaði Fiskifrétta við Guðna Einarsson sem skrifar sögu Landhelgisgæslunnar síðustu þrjá áratugi og bætir þar við áður útkomna bók um fyrstu sjötíu árin í sögu Gæslunnar.