Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Séra Þórir Stephensen er látinn

Read Full Article →

Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur, er látinn. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli í gær, á 95. aldursári. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu . Þórir fæddist í Reykjavík 1. ágúst 1931. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1954 og vígðist til prests sama ár, yngstur manna á Íslandi, 22 ára, þegar hann var settur sóknarprestur í Staðarhólsþingum í Dölum. Þórir var sóknarprestur á Sauðárkróki frá 1960 til 1971. Hann var aðstoðarprestur við Dómkirkjuna í Reykjavík 1971 til 1973, þegar hann var kjörinn dómkirkjuprestur. Hann var dómkirkjuprestur til 1989. Eftir það starfaði hann sem staðarhaldari í Viðey. Þórir var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2008 fyrir störf sín í þágu kirkju, sögu og samfélags. Þórir var giftur Dagbjörtu Gunnlaugsdóttur frá Stökku í Svarfaðadal, fæddri 1927. Hún lést 2023. Börn þeirra voru Elín, Þóra og Ólafur. Elín og Þóra eru báðar látnar, en Ólafur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins og Fréttablaðsins.

Share this article