Innlent | Morgunblaðið | 1.7.2026 | 6:00 Andlát: Sr. Þórir Stephensen Þórir Stephensen. Setja bókamerki Sr. Þórir Stephensen, fv. dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli 30. júní, á 95. aldursári. Þórir fæddist í Reykjavík 1. ágúst 1931. Hann lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1954 og stundaði framhaldsnám í kennimannlegri guðfræði í Pullach í Þýskalandi 1964-1965. Hann lauk námi í skjalavörslu og skjalasöfnun frá HÍ 1990 og meistaraprófi í kirkjusögu við sama skóla 2002. Hann vígðist yngstur manna á Íslandi til prests, 22 ára, árið 1954 er hann var settur sóknarprestur í Staðarhólsþingum í Dölum. Til Sauðárkróks flutti hann árið 1960 og var þar sóknarprestur til 1971. Hann var aðstoðarprestur við Dómkirkjuna í Reykjavík 1971 til 1973 en var þá kjörinn dómkirkjuprestur og gegndi þeim starfa til 1989. Þá varð hann staðarhaldari í Viðey og sinnti því starfi til sjötugs. Hann sinnti einnig kennslu, bæði á Sauðárkróki og í Hagaskóla í Reykjavík. Þórir lét til sín taka í margvíslegum félagsstörfum, m.a. í Rótarýhreyfingunni, Lions, Rauða krossinum og Frímúrarareglunni. Hann var jafnframt virkur í kjaramálum fyrir hönd Prestafélagsins og Bandalags háskólamanna. Þórir var ákafur áhugamaður um sögu og var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 2008 fyrir störf í þágu kirkju, sögu og samfélags. Eftir hann liggja margvísleg ritverk, meðal annars Saga Dómkirkjunnar í Reykjavík, Saga kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma og Stefán sterki, myndbrot úr mannsævi, en það var saga sr. Stefáns Stephensen afa hans. Meistararitgerð hans fjallaði um próventu í klaustrum á miðöldum. Eiginkona Þóris var Dagbjört Gunnlaugsdóttir frá Sökku í Svarfaðardal, fædd 1927. Hún lést 2023. Börn þeirra voru þrjú; Elín, f. 1955, og Þóra, f. 1957, sem báðar eru látnar, og Ólafur, f. 1968. Barnabörnin eru fimm og síðasta prestverk Þóris var að skíra lítinn langafadreng 2023. Síðustu tvö og hálfa árið var Þórir í sambandi með Sigrúnu Cortes. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Áfram vætusamt en hiti allt að 17 stigum Andlát: Sr. Þórir Stephensen Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Álit kom ráðherra á óvart Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sæbrautarstokkur forsenda Borgarlínu Tvö stærstu mál sögunnar: Skoða tengslin „Ekkert svigrúm til að gera neitt gott“ Fækkun beiðna áhyggjuefni Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki búsettir hér á landi Atburðarásin eins og í bíómynd Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Myndskeið: Ottó aflvana og hættulega nálægt landi Börn niður í sjö ára að skoða klám Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Fækkun beiðna áhyggjuefni Þyrlan kölluð út vegna slyss í Drangey Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Nýjast á mbl.is » Eldur kviknaði í rafmagnsbíl í bílakjallara Áfram vætusamt en hiti allt að 17 stigum Andlát: Sr. Þórir Stephensen Ríkisstjórn afgreiðir fjárlög í dag Álit kom ráðherra á óvart Umræðan Varnaðarorð utanríkisráðherra Atvinnuleysi um hásumar er óviðunandi staða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sæbrautarstokkur forsenda Borgarlínu 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Börn niður í sjö ára að skoða klám Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki búsettir hér á landi Atburðarásin eins og í bíómynd Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Einhvern veginn vilja þeir okkur ekki heim“ Myndskeið: Ottó aflvana og hættulega nálægt landi Börn niður í sjö ára að skoða klám Mikill munur á einkunnagjöf staðfestur: 57% með A Mengunarvarnir Hvals óásættanlegar: Skortir svör Fækkun beiðna áhyggjuefni Þyrlan kölluð út vegna slyss í Drangey Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið Banna kaþólikkum að vera frímúrarar 106 kíló af kókaíni falin undir skipinu Boða atlögu að olíufélagi Hvals hf. Hitinn gæti náð 20 stigum Telja Frakkana komna til Ísafjarðar Andlát: Halldór Haraldsson Atburðarásin eins og í bíómynd Tveir fluttir til skoðunar eftir slys í Mosfellsbæ Kvikuhlaup og jafnvel eldgos enn líklegast „Það er ekki hægt að hafa glugga opna“ Skildu mann eftir á veitingastað með reikninginn Lúsmý lagðist á ferðamenn í Hveragerði Framvísaði fölsku skilríki í kosningunum án athugasemda Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Þór lagður af stað: Sérsveitarmenn um borð Rúður sprungu í 400 gráðu hita Hluti af sorgarferlinu að sjá húsið rifið „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“