Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Skíthrædd: Þarna er hún stúlkan

Read Full Article →

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar: „Heimurinn er skelfilegur þó að hann sé fallegur,“ er fyrsta línan sem maður heyrir á þessari plötu, glúrin lína sem gefur vel til kynna hvað í vændum er. Skíthrædd inniheldur lög úr samnefndum söngleik sem Unnur Elísabet er höfundur að en hún á að baki fjölskrúðugan feril sem leikari, söngvari, dansari, leikstjóri, textahöfundur o.fl. Sýningin var sett upp í Þjóðleikhúsinu þar sem Annalísa Hermannsdóttir og Einar Lövdahl Gunnlaugsson sungu og léku með Unni og koma þau einnig fyrir á þessari hljóðritun. Þetta er skemmtileg plata og hressandi, á mörkum söngs, uppistands og leiklistar. Alvara lífsins er sett í gráglettið samhengi, kímni nýtt sem úrlausnartól og þetta minnir mig í senn á Hrekkjusvínaplötuna og glæsiverk Bjarna Snæbjörnssonar, Góðan daginn, faggi. „Ef það er hægt að breyta hræðslu í létt Broadway-númer þá er allt mögulegt,“ segir m.a. í kynningartexta og verkið er sannarlega valdeflandi. Hindranir lífsins og hræðslan sem við öll glímum við, þetta ásamt ýmsu öðru er sett í kímið ljós, eitthvað sem getur leyst þetta heilaringl upp og smækkað. Textinn í titillaginu er t.a.m. frábær. Eftir upptalningu á því sem þykir prýða prúða stúlku segir Unnur „Ég vildi líka vera með læti / Að fíflast eins og þú / Að gera mistök bara alveg eins og þú ... Ég ætla að taka mikið pláss.“ Hér er frelsis- og lífsþráin orðuð svo skilmerkilega en í búningi grípandi grallaralags. Unnur dregur hnyttnar hendingar fram út í gegn, „Hjónabandið“ byrjar vel en endar í frosti, parið búið með allt Netflix, þola ekki tónfallið í rödd hvors annars og salsanámskeiðið sem átti að krydda upp á tilveruna var misheppnað (eiginmaðurinn var svo taktlaus). „Ég týni mér ef ég er ekki að afreka“ segir í „Gangandi klisja“, mjög gott komment á hamstrahjólið sem við lifum í. „Þarna er hún stúlkan“ er þá snoturt og þokkafullt, fallegur óður til stúlkunnar sem „setur nú sögur um hræðslu á svið ... nú áfram hún fer, heiminn sinn ber“. Lögin eru vel flest stutt og snaggaraleg og bera söguna vel. Þau eru reyndar misgóð, áðurnefnt „Gangandi klisja“ er fyrst og síðast tæki til að skila textanum góða, lagið sem slíkt er heldur þunnt. „Guð á klósettinu“ er þá skot yfir markið, einfaldleikinn verður yfirþyrmandi undir rest. En þessi tilvik eru fá. Því heilt á litið er platan sterk, það er kynngimagn í henni og kraftur sem hefur vafalaust losnað í sköpunarferlinu. Boðskapurinn á Skíthrædd er nefnilega góður bæði og nauðsynlegur og aldrei nógu oft á borð borinn. Unnur er vafalaust efld eftir þetta ferli og hiklaust margir fleiri. Skíthrædd er plata eftir Unni Elísabetu. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2. „Heilt á litið er platan sterk, það er kynngimagn í henni og kraftur sem hefur vafalaust losnað í sköpunarferlinu.“ Arnar Eggert Thoroddsen er doktor í tónlistarfræðum frá Edinborgarháskóla og aðjúnkt í fjölmiðlafræði við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Hann hefur fjallað um tónlist í íslenskum fjölmiðlum um áratugaskeið.

Share this article