Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Afþakkaði háar fjárhæðir fyrir rödd sína

Read Full Article →

Menning | Tónlist | mbl | 6.3.2026 | 12:51 Afþakkaði háar fjárhæðir fyrir rödd sína Una Stefánsdóttir söngkona og tónskáld. Ljósmynd/Laura Studarus Ragnheiður Birgisdóttir [email protected] Setja bókamerki Tónlistarkonan Una Stefánsdóttir segist hafa afþakkað háar fjárhæðir gegn því að selja rödd sína til erlends fyrirtækis. Una greindi frá því á Facebook-síðu sinni að erlent fyrirtæki hefði ítrekað haft samband við hana í þeim tilgangi að nýta rödd hennar til að þjálfa gervigreindarmódel. Segir hún að sér hafi verið boðinn „hellingur af peningum“ fyrir að taka sjálfa sig upp að tala íslensku og syngja. Vildi fyrirtækið kaupa réttinn til að nýta rödd Unu. „Ég gæti orðið næsta Siri! Nema alíslensk OG syngjandi!“ segir Una í færslunni. Gæti verið notað í „einhvern viðbjóð“ „Ég vil ekki selja röddina mína á opinberan vettvang þar sem hver sem er getur notað hana í hvað sem er,“ segir Una. „Einhver vitleysingur gæti notað röddina mína í myndband eða auglýsingar um einhvern viðbjóð. Ég myndi t.d. ekki vilja heyra sjálfa mig í útvarpinu í auglýsingu með einhvern nasistaáróður og geta ekkert gert í því nema knúsað bankareikninginn fyrir.“ Þá varar hún við því að umrætt fyrirtæki gæti haft samband við aðrar söngkonur og hvetur þær til að hugsa sig tvisvar um. Kallar eftir skýrum lagaramma Að lokum vekur hún athygli á því að það vanti skýrari lagaramma í kringum tónlist unna með gervigreind. „Ég óska og kalla eftir því að stjórnvöld setjist niður með STEF, Félagi tónskálda og textahöfunda ofl. og geri einhverja aðgerðaráætlun og reglur. Við hljótum öll vilja stuðla að betra umhverfi fyrir íslenskt tónlistarfólk (og listafólk almennt, þetta er auðvitað að gerast á fleiri stöðum) og efla þannig íslenska menningu,“ skrifar hún. „Akkúrat núna er upplifunin svolítið sú að það sé verið að þurrka út heila starfsstétt á einu bretti með tilkomu þessara AI módela.“ Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum listaverkunum verður eytt Hálfíslensk frumraun slær í gegn Störfum við menningu fækkar um nær 20% Birnir og Páll Óskar með sex tilnefningar Segir Björk hafa rangt fyrir sér Óperan hefur starfsemi sína í Hofi Kjarnorkuvetur í kvikmyndabransa „Ég er auðvitað mjög stolt“ Fjöruverðlaunin afhent í tuttugasta sinn Hefur ekki áhyggjur af gráu hárunum Öllum listaverkunum verður eytt Hefur ekki áhyggjur af gráu hárunum Kjarnorkuvetur í kvikmyndabransa Óperan hefur starfsemi sína í Hofi Birnir og Páll Óskar með sex tilnefningar Danska konan heillar erlendis „Ég er auðvitað mjög stolt“ Fjöruverðlaunin afhent í tuttugasta sinn Everest-fjall píanóleikarans Valgerður hlýtur Viðurkenningu Hagþenkis Danska konan heillar erlendis Öllum listaverkunum verður eytt Neil Sedaka látinn Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Talar við látinn föður sinn Hann er kjölturakki konungsins Hefur ekki áhyggjur af gráu hárunum Dýralíkneski notuð sem skotmörk „Ég spyr bara Guð“ Yfir 100.000 bækur seldar í Danmörku Áhugaverð viðtöl Menning Að horfast í augu við sjálfan sig Menning Yuja Wang í töfraheimi Gabríelu Menning Hrá, hörð og kraftmikil Carmen Menning Skaut af sér handlegginn Menning Varð óvart að söngleik Mest lesið Í gær Í vikunni Öllum listaverkunum verður eytt Hálfíslensk frumraun slær í gegn Störfum við menningu fækkar um nær 20% Birnir og Páll Óskar með sex tilnefningar Segir Björk hafa rangt fyrir sér Óperan hefur starfsemi sína í Hofi Kjarnorkuvetur í kvikmyndabransa „Ég er auðvitað mjög stolt“ Fjöruverðlaunin afhent í tuttugasta sinn Hefur ekki áhyggjur af gráu hárunum Öllum listaverkunum verður eytt Hefur ekki áhyggjur af gráu hárunum Kjarnorkuvetur í kvikmyndabransa Óperan hefur starfsemi sína í Hofi Birnir og Páll Óskar með sex tilnefningar Danska konan heillar erlendis „Ég er auðvitað mjög stolt“ Fjöruverðlaunin afhent í tuttugasta sinn Everest-fjall píanóleikarans Valgerður hlýtur Viðurkenningu Hagþenkis Danska konan heillar erlendis Öllum listaverkunum verður eytt Neil Sedaka látinn Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Talar við látinn föður sinn Hann er kjölturakki konungsins Hefur ekki áhyggjur af gráu hárunum Dýralíkneski notuð sem skotmörk „Ég spyr bara Guð“ Yfir 100.000 bækur seldar í Danmörku Áhugaverð viðtöl Menning Óttaðist að missa barnið sitt Menning Gísli Örn missti fimm kíló í ferlinu Menning Stanslaus lýsing við Grensásveg Menning Hrá, hörð og kraftmikil Carmen Menning Leiksýningar ársins 2025

Share this article