Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.6.2026 | 21:20 Ávarp fjallkonu: „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Elín Sif Halldórsdóttir, einnig þekkt undir listamannanafninu Elín Hall. mbl.is/Anton Brink Setja bókamerki Elín Sif Halldórsdóttir, söng- og leikkona og fjallkona Reykjavíkur í ár, flutti texta eftir Braga Valdimar Skúlason í ávarpi sínu á Austurvelli í dag. Textinn hefst á orðunum „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin. Mér rennur til skyldunnar brennandi blóð.“ Elín flutti ávarp á Austurvelli í dag og lokaði þar með hátíðarathöfninni sem hófst á ávarpi Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Frétt af mbl.is Elín Sif er fjallkonan Fjöldi fólks lagði leið sína á Austurvöll. mbl.is/Anton Brink Ávarpið má sjá hér í heild sinni: i Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin. Mér rennur til skyldunnar brennandi blóð. Það berst í mér hjartað — og sálin. Ég bind þessa hugsun í braglínukrans — betra að muna’ hana svona — og býð þér að stíga í dulítin dans djarfra og hugbjartra vona. ii Líttu í kringum þig, líttu’ út á haf líttu á dali og firði. Líttu á allt það sem landið þér gaf — hvert lífsmark er mikils virði. Allt sem er framundan — þetta ert þú. Þetta er líf þitt og yndi. Verkefnið mitt er að byggja hér brú og bjóða fram skjól fyrir vindi. iii Því saga og menning er ofin í orð sem okkur er falið að geyma. Það er auðvelt að missa það allt fyrir borð — það er auðvelt að týna og gleyma. Ef samhengið hverfur er hugsunin grunn — hálfkveðin vísa í eyra. Fortíðin lagði þér fjársjóð í munn sem framtíð á skilið að heyra. iv Ég finn fyrir depurð, ég finn ég er þreytt, ég finn fyrir smitandi kvíða. Því mér þykir sannlega sjúklega leitt að sjá hvernig þér virðist líða. Skeytingarlítil og skapstór í senn, í skotgröfum dofin og klofin. Það verður brekka að þrauka hér enn ef þjóðfélagssáttin er rofin. v Ég veit þú þarft einungis örlítið pepp — það er í þig töluvert spunnið. Og ef ég við þusið og þvermóðsku slepp, þá er til mikils unnið. Ég er ekki neitt ef ég á ekki þig og alla þína bresti. Því þegar ég sé þig þá sé ég mig — þann sannleika færð þú í nesti. vi Mundu svo, þegar loks sólin er sest og sigrar þig höfugur draumur; samtal um mannúð og mildi er best — en mundu að tíminn er naumur. Ég kveð þig að endingu, kúnstuga þjóð — kannski þú hrökkvir af doða. Vonandi fetar þú farsældar slóð og ferð þér nú ekki að voða. mbl.is/Anton Brink Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Heldri bílar yfir 100 ára Héraðsvatnabrú England - Króatía, staðan er 3:2 City fylgist með Ítalanum Friðarsamningurinn birtur opinberlega Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Ekkert sem bendir til geðræns vanda Hvað vissi aðstoðarkona Epsteins? Ný lög um íslenska fánann auka söluna Mest lesið Í gær Í vikunni Aflýstu 17. júní vegna veðurs Valdimar lætur af störfum Slagsmál brutust út á milli ökumanna Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Einn fær 20 milljónir Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Óskar Íslandi til hamingju með daginn Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Heldri bílar yfir 100 ára Héraðsvatnabrú England - Króatía, staðan er 3:2 City fylgist með Ítalanum Friðarsamningurinn birtur opinberlega Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Sjálfstæði er verkefni hverrar kynslóðar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tveir í gæsluvarðhald vegna árásar í Reykjanesbæ Arnhildur nýr borgarlistamaður Reykjavíkur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Ný lög um íslenska fánann auka söluna Mest lesið Í gær Í vikunni Aflýstu 17. júní vegna veðurs Valdimar lætur af störfum Slagsmál brutust út á milli ökumanna Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Einn fær 20 milljónir Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Óskar Íslandi til hamingju með daginn Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article