Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Fékk þann heiður að leggja fjallkonunni orð í munn“

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.6.2026 | 12:41 „Fékk þann heiður að leggja fjallkonunni orð í munn“ Elín Sif Halldórsdóttir, leik- og söngkona, var fjallkona ársins 2026 og flutti ljóð Braga Valdimars. mbl.is/Anton Brink Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég fékk bara pöntun, mér skilst að þetta hafi verið þannig mikið til að það hafi verið ljóðskáld og svo fjallkonan sem koma að þessu, þó ekki sömu manneskjur,“ segir Bragi Valdimar Skúlason, auglýsingafrömuður, Baggalútur, íslenskufræðingur og skáld, titlarnir hér hafðir í stafrófsröð þar sem óljóst er um erfðaröð þeirra að margslunginni krúnu Braga. Pöntunin umrædda snerist um fjallkonuljóð þjóðhátíðardagsins 17. júní sem hefst einfaldlega á orðunum „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“, og var Bragi tilbúinn að segja Morgunblaðinu örlítið frá tilurð þess þar sem hann var að „reyna að brjótast inn á Malpensa-flugvöllinn á Ítalíu“. Frétt af mbl.is „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Síðast þegar sá, sem hér skrifar, ræddi við Braga var hann staddur á heljarþröm í smákökubakstri fyrir jólin svo skammt er stórra högga á milli í lífi skáldsins þótt hinn óðfróði sé ávallt tilbúinn að veita viðtöl um atburði þess. „Ég fékk þann heiður að leggja fjallkonunni orð í munn nú í ár og hún var nú ekki af verri endanum, hún Elín Hall [Elín Sif Halldórsdóttir, leik- og söngkona,] gerði þetta sérstaklega glæsilega,“ segir Bragi sem leit yfir þjóðmálin síðustu ár og áratugi til að sækja sér innblástur í ávarp til þrasgjarnrar þjóðar. Flateyrarför skáldskaparvæn „Það er orðið býsna langt síðan einhver henti í bundið mál og þar sem ég fæ örugglega ekki að gera þetta aftur ákvað ég að binda þetta í þjóðlegan búning,“ segir þessi liðsmaður Baggalúts, stórveldis í íslenskri dægurmenningu sem þróaðist upp úr vina- og kunningjahópi kringum vefsíðuna baggalútur.is sem margir minnast frá því um aldamót. Hann segir kveðskapinn að mestu annars hafa verið pepp og samstöðuhvatningu. „Þetta tók nú alveg dágóðan tíma en það nýttist vel að keyra til Flateyrar, þá kom slatti, og svo voru einhverjar flugferðir nýttar til að skrúfa þetta saman, einu tímarnir sem maður fær til að vera í friði eru þegar maður er einhvers staðar á ferðalagi,“ segir Bragi af vinnunni á bak við verkið. Hann segist hafa haft virkilega gaman af verkefninu og mótun þess og er spurður út í boðskapinn. „Það er kannski helst að passa upp á það sem við eigum, það er svona þungavigtin í þessu, pössum upp á tungumálið okkar og verum ekki sítuðandi yfir engu. Við erum saman í þessu og eigum bara að vera samstiga,“ segir Bragi og kveður þann heiður, sem hann telur sér sýndan með því að veljast til verksins, standa upp úr tilfinningum hans þegar hann lítur til baka. „Maður er bara kallaður til eins og skáldin forðum,“ segir Bragi Valdimar Skúlason að lokum og við höfum hér dálítið pláss fyrir fyrstu tvö erindi hans: (allt ljóðið birt hér í vefútgáfu mbl.is þar sem pláss er ekki takmörkuð auðlind) i Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð. Við þurfum að ræða málin. Mér rennur til skyldunnar brennandi blóð. Það berst í mér hjartað — og sálin. Ég bind þessa hugsun í braglínukrans — betra að muna’ hana svona — og býð þér að stíga í dulítinn dans djarfra og hugbjartra vona. ii Líttu í kringum þig, langt út á haf á lognsæla dali og firði. Líttu á allt það sem landið þér gaf — hvert lífsmark er mikils virði. Allt sem er framundan — þetta ert þú. Þetta er líf þitt og yndi. Verkefnið okkar; að byggja hér brú og bjóða fram skjól fyrir vindi. iii Því saga og menning er ofin í orð sem okkur er falið að geyma. Það er auðvelt að missa það allt fyrir borð — það er auðvelt að týna og gleyma. Ef samhengið hverfur er hugsunin grunn — hálfkveðin vísa í eyra. Fortíðin lagði þér fjársjóð í munn sem framtíð á skilið að heyra. iv Ég finn fyrir depurð, ég finn ég er þreytt, ég finn fyrir smitandi kvíða. Því mér þykir sannlega sjúklega leitt að sjá hvernig þér virðist líða. Skeytingarlítil og skapstór í senn, í skotgröfum dofin og klofin. Það verður brekka að þrauka hér enn ef þjóðfélagssáttin er rofin. v Ég veit þú þarft einungis örlítið pepp — það er í þig töluvert spunnið. Og ef ég við þusið og þvermóðsku slepp, þá er til mikils unnið. Ég er ekki neitt ef ég á ekki þig og alla þína bresti. Því þegar ég sé þig þá sé ég mig — þann sannleika færð þú í nesti. vi Mundu svo, þegar loks sólin er sest og sigrar þig höfugur draumur; samtal um mannúð og mildi er best — en mundu að tíminn er naumur. Ég kveð þig að endingu, kúnstuga þjóð — kannski þú hrökkvir af doða. Vonandi fetar þú farsældar slóð og ferð þér nú ekki að voða. Bragi Valdimar Skúlason Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Fékk þann heiður að leggja fjallkonunni orð í munn“ Dró upp hamar í deilu við kassadömu Myndskeið: Gestgjafarnir skoruðu sex Toyota blæs til rafbílasýningar á morgun Driver dies following traffic accident near Reykholt Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Breytt stöðumat „Vona að menn fari kátir út í sumarið“ „Fékk þann heiður að leggja fjallkonunni orð í munn“ Sýknaðir í annað sinn af hryðjuverkaákæru Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir 25 vildu verða sveitarstjóri Þingvöllum lokað klukkan 15 á laugardaginn Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Andlát: Þráinn Eggertsson Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » „Fékk þann heiður að leggja fjallkonunni orð í munn“ Dró upp hamar í deilu við kassadömu Myndskeið: Gestgjafarnir skoruðu sex Toyota blæs til rafbílasýningar á morgun Driver dies following traffic accident near Reykholt Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðræðum Írans og Bandaríkjanna í Sviss frestað Fjórir ísraelskir hermenn drepnir Vill yfirsýn yfir aðlögun og árekstra Lyfjalaus nanómeðferð gegn brjóstakrabbameini Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Málningin flagnar enn í Vesturbæjarlaug Tveir fluttir á slysadeild eftir eld í Breiðholti Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir 25 vildu verða sveitarstjóri Þingvöllum lokað klukkan 15 á laugardaginn Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Andlát: Þráinn Eggertsson Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article