- What: U.S. authorities banned the sale of Polestar vehicles due to national security concerns
- Impact: Consumers in the U.S. may be affected if they were planning to purchase Polestar vehicles
Rafbílaframleiðandinn Polestar hyggst yfirgefa Bandaríkjamarkað eftir að bandaríska viðskiptaráðuneytið hafnaði beiðni félagsins um að halda áfram sölu nýrra bíla í landinu. Frá þessu greinir Wall Street Journal . Ákvörðunin kemur í kjölfar nýrra reglna, sem banna kínverskan hugbúnað og tiltekinn búnað í nettengdum ökutækjum af þjóðaröryggisástæðum. Bandarísk stjórnvöld hafa meðal annars vísað til hættu á að myndavélar, staðsetningargögn og önnur kerfi í bílum geti nýst erlendum ríkjum til gagnasöfnunar. Polestar, sem er í eigu kínverska bílarisans Geely, hafði óskað eftir undanþágu samkvæmt fyrirkomulagi sem stjórnvöld kynntu samhliða reglunum. Beiðninni var hins vegar hafnað, og mun félagið því einungis selja þær bifreiðar sem enn eru til á lager í Bandaríkjunum. Þjónusta og viðgerðir fyrir núverandi eigendur verða áfram í boði. Volvo fékk undanþágu Málið endurspeglar vaxandi spennu viðskiptasambandi Bandaríkjanna og Kína, þar sem bílaiðnaðurinn hefur í auknum mæli orðið hluti af þjóðaröryggisstefnu stjórnvalda. Nettengdir bílar eru í dag taldir til mikilvægra tæknikerfa, ekki síður en fjarskiptabúnaður eða hálfleiðarar. Athygli vekur að Volvo, sem einnig er í meirihlutaeigu Geely, fékk fyrr á árinu heimild til að halda starfsemi sinni áfram í Bandaríkjunum eftir viðræður við stjórnvöld um tækni- og öryggismál. Samþykktin var veitt á grundvelli einstaklingsbundins mats á starfsemi félagsins. Polestar hyggst nú beina sjónum sínum enn frekar að Evrópumarkaði, sem stendur nú undir um 80% af heildarsölu fyrirtækisins. Forstjóri félagsins, Michael Lohscheller, sagði á dögunum að bílaiðnaðurinn væri að færast inn í nýtt tímabil þar sem svæðisbundin framleiðsla og markaðir skiptu sífellt meira máli.