Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Volvo eykur hlut sinn í Polestar

Read Full Article →

Sænski bílaframleiðandinn Volvo hyggst auka hlut sinn í rafbílaframleiðandanum Polestar með því að breyta hluta af láni í hlutafé. Samhliða hafa félögin einnig náð samkomulagi um framleiðslu í Bandaríkjunum. Volvo og kínverski eigandi þess, Zhejiang Geely Holding Group, stofnuðu Polestar sem sjálfstætt rafbílafyrirtæki áður en það var skráð á Nasdaq-markað árið 2022 í gegnum samruna við sérhæft yfirtökufélag (SPAC). Hlutabréf Polestar hafa lækkað um 96% frá skráningu. Félagið hefur glímt við taprekstur á sama tíma, ekki síst vegna þess að rafbílavæðing á heimsvísu hefur gengið hægar en vænst var. Að auki hefur samkeppni á markaðnum orðið sífellt harðari. Rafbílaframleiðandinn hefur áður fengið fjármögnun frá Volvo upp á um 1 milljarð dala. Samkvæmt samkomulaginu mun Volvo umbreyta 274 milljónum dala af umræddu láni í hlutafé og hækka þannig eignarhlut sinn í Polestar úr 9,8% í 19,9%. Í kjölfarið mun Geely einnig breyta um 300 milljónum dala af skuldum í hlutafé. Til að koma í veg fyrir að hlutur Volvo þynnist út mun sænska bílafyrirtækið jafnframt ráðast í aðra, minni umbreytingu, upp á um 65 milljónir dala, til að halda eignarhlut sínum í Polestar óbreyttum í 19,9%.

Share this article