Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sala Volvo heldur áfram að dragast saman

Read Full Article →

Sænski bílaframleiðandinn Volvo Cars hefur tilkynnt 10% sölusamdrátt á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram á vef WSJ en þar segir að þrátt fyrir samdráttinn hafi sala á rafbílum aukist um 14%. Volvo seldi 162.864 bíla á fyrstu þremur mánuðum ársins en aukin samkeppni í Kína og neytendaviðhorf á bandarískum markaði hafa haldið áfram að bíta. Sala á tengiltvinnbílum dróst jafnframt saman um 16%. Sala á síðasta ársfjórðungi er jafnframt minni en hún var á síðasta ársfjórðungi 2025 en þá dróst sala Volvo saman um 7,2% þegar fyrirtækið seldi 177.830 bíla. Til samanburðar seldi Volvo 191.601 bíl á sama tíma árið 2024. Sjá einnig Bílasala Volvo dróst saman um 7,2% Erik Severinsons, sölustjóri Volvo, sagði fyrr á árinu að félagið væri enn vongott um rafbílasölu og þá sérstaklega vegna aukinnar eftirspurnar eftir EX 90 og EX 30-bílum fyrirtækisins.

Share this article