Lögfræðistofan Logos hagnaðist um 687 milljónir króna árið 2025, samanborið við 507 milljónir króna árið áður. Stjórn félagsins lagði til að 720 milljónum króna verði úthlutað til eigenda yfir höfuðstól vegna rekstrarársins 2025, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi. Logos, sem er stærsta lögfræðistofa landsins, velti rúmlega 2,7 milljörðum króna árið 2025. Rekstrartekjur stofunnar jukust um 12,8% eða um 310 milljónir króna milli ára. Rekstrarhagnaður stofunnar nam 1.090 milljónum króna og jókst um nær 20% frá fyrra ári. Ársverk voru um 53,2 í fyrra, samanborið við 52,8 árið áður. Laun og tengd gjöld námu 1.242 milljónum króna og jukust um 10,7% frá fyrra ári. „Áætlanir stjórnenda gera ráð fyrir að rekstur næsta árs verði sambærilegur árinu 2025,“ segir í skýrslu stjórnar. Eignir Logos námu 1.390 milljónum króna í lok árs 2025 og eigið fé var um 572 milljónir króna. Eigendur stofunnar voru 19 í lok árs 2025. Logos stofnaði á dögunum Logos endurskoðun & ráðgjöf ehf., nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki ásamt Þorsteini Pétri Guðjónssyni, fyrrverandi forstjóra Deloitte á Íslandi. Fjallað var ítarlega um nýja ráðgjafarfyrirtækið í Viðskiptablaðinu sem kom út 17. júní sl. Sjá einnig Ætla að hrista upp í markaðnum