Lögmannsstofan Logos og Þorsteinn Pétur Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Deloitte, hafa stofnað Logos endurskoðun og ráðgjöf eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá. Þorsteinn Pétur segir alþekkt að endurskoðunarfyrirtæki hafi innan sinna vébanda lögfræðinga og nýti krafta þeirra. Aftur á móti sé það nýlunda að fyrirtæki, sem eru í viðskiptum við lögmannsstofu, mögulega vegna samruna- eða úrlausnarefna á sviði skattamála, geti líka fengið þar heildstæða þjónustu á sviði endurskoðunar og ráðgjafar. Spurður hvernig samstarfið við Logos hafi komið til svarar Þorsteinn: „Logos viðraði þessa hugmynd við mig og við sáum strax að þarna væru miklir möguleikar. Það væru sóknarfæri í að nýta sérþekkingu okkar og áralanga reynslu til að bjóða upp á heildarlausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir þegar kemur að fjárhagslegum upplýsingum félaga, áreiðanleikakönnunum, verðmati, endurskipulagningu og kaupum og sölu fyrirtækja. Ákvörðunin lá beint við þegar heildarmyndin varð ljós.“ Núna tekur við snarpt uppbyggingarstarf Logos er stærsta lögmannsstofa landsins og veitir víðtæka ráðgjöf, þar á meðal þjónustu á sviðum sem snerta oft ráðgjöf endurskoðenda. Má þar nefna ráðgjöf við kaup og sölu fyrirtækja, fjárhagslegra endurskipulagningar, áreiðanleikakannana, samrunamála og skattaráðgjafar. „Þar á bæ varð stjórnendum strax ljóst að með því að sameina krafta mætti bjóða enn víðtækari og betri þjónustu,“ segir Þorsteinn. „Með þessu ætlum við okkur að hrista ærlega upp í endurskoðunar- og ráðgjafamarkaðnum. Núna tekur við snarpt uppbyggingarstarf á þjónustunni og þar er mikill styrkur í því að vera í samstarfi við Logos. Með því má segja að við getum byrjað hlaupandi og ætlum strax að láta til okkar taka. Við ætlum okkur stóra hluti þannig að við verðum í hópi fremstu endurskoðunar- og ráðgjafarskrifstofa landsins. Og þó að við byggjum upp starfsemina frá grunni þá erum við í afar góðri stöðu til að gera það. Við vinnum nú að því að raða saman öflugu teymi og herjum á markaðinn. Þetta verður gaman.“ Þorsteinn hvetur áhugasama til að gefa kost á sér í þetta verkefni með honum. „Við tökum vel á móti öflugu fólki, jafnt reynslumiklum sérfræðingum sem og þeim sem eru að hefja feril sinn, og hvetjum þá sem vilja byggja upp eitthvað nýtt og spennandi með okkur til þess að setja sig í samband við mig.“ Horfa til innri og ytri vaxtar Þorsteinn segir að við uppbyggingu starfseminnar verði bæði horft til innri og ytri vaxtar og með því styrktar enn frekar stoðir LOGOS, sem verið hefur ein af fremstu lögmannsstofum landsins í yfir hundrað ár. „Við horfum til framtíðar og sníðum okkur stakk eftir vexti hverju sinni, en njótum þess um leið að búa að áratuga reynslu, sterku orðspori og öflugum tengslum við atvinnulífið. Logos endurskoðun og ráðgjöf ehf. er opin fyrir nýjum tækifærum þegar kemur að vexti félagsins og margt spennandi framundan.“ Þorsteinn segir að hér á landi starfi um 35 skráð endurskoðunarfyrirtæki og að líklega vinni nálægt því tveir þriðju endurskoðenda hjá einhverju af stóru alþjóðlegu endurskoðunarfyrirtækjunum sem hér séu. „Við höfum greint markaðinn, átt fjölda samtala við fólk úr ólíkum áttum viðskiptalífsins og sjáum þróunina hjá stóru alþjóðlegu endurskoðunarfyrirtækjunum að aðaláhersla þeirra er þjónusta við stór og/eða skráð félög í hverju landi. Það er því tækifæri fyrir sterkan nýjan aðila á markaðinn að endurskoða minni og meðalstór félög og sinna ráðgjöf fyrir öll félög og stofnanir.“ Vildi horfa fram á veginn Eins og áður sagði er Þorsteinn með mikla reynslu á sínu sviði enda starfaði hann hjá Deloitte í 26 ár. Hann var í eigendahópnum frá 2008 og var forstjóri fyrirtækisins frá árinu 2019 þar til í byrjun árs 2026. Þá komst hann að samkomulagi um starfslok vegna ákæru um meinta refsiverða háttsemi, sem hann var síðan alfarið sýknaður af. „Þessi viðskilnaður átti sér þann aðdraganda að ég steig til hliðar á meðan í gangi var dómsmál þar sem ég var borinn röngum sökum. Því máli lauk með fullri sýknu og ég hreinsaður af öllum ásökunum,“ segir Þorsteinn og bætir við að þetta hafi engu að síður orðið honum tækifæri til að staldra við og meta næstu skref. „Og fremur en að dvelja við það sem á undan var gengið fann ég að mig langaði að horfa fram á veginn og nýta þekkingu mína og reynslu til að byggja eitthvað nýtt.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .