Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ætla að hrista upp í markaðnum

Read Full Article →

Stofnað hefur verið nýtt endurskoðunar- og ráðgjafafyrirtæki, sem nefnist Logos endurskoðun og ráðgjöf. Þar sameina krafta sína lögmannsstofan Logos og Þorsteinn Pétur Guðjónsson, sem mun stýra félaginu en hann var áður forstjóri Deloitte á Íslandi. Þorsteinn Pétur, sem hefur mikla reynslu á sviði endurskoðunar og ráðgjafar eftir 26 ára starf hjá Deloitte á Íslandi, mun stýra nýja fyrirtækinu. Hann segist sjá mikil tækifæri í ráðgjöf, þar sem fyrirtækin í landinu séu í stöðugri leit að aukinni og betri þjónustu. „Segja má að við höfum séð sóknarfæri í nýrri nálgun og uppsetningu á endurskoðunarþjónustu með áherslu á ráðgjöf,“ segir hann. Að sögn Þorsteins er hugmyndin að byggja upp frá grunni, en með nýstárlegri nálgun, vandað og öflugt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki, þar sem saman komi styrkleikar hefðbundinnar endurskoðunar, fyrirtækjaráðgjafar með áherslu á nýjustu tækni og sjálfvirknivæðingu, og svo skatta- og lögfræðiráðgjöf sem Logos hefur veitt. Sérstaðan fáist með því að leiða saman þá miklu sérþekkingu, fagmennsku og krafta sem býr að baki þessum aðilum. Stofnun félagsins eru umtalsverð tíðindi í geira sérfræðiráðgjafar hér á landi og líklegt að hún hristi upp í markaðnum. Bæði er það vegna aukinnar samkeppni og vegna þess að Þorsteinn hefur áratuga reynslu á þessu sviði eins og áður sagði. Eins felst nýbreytni í því að hafa endurskoðun og ráðgjöf tengda sérhæfingu lögmanna Logos. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article