Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Auður Lego-fjöl­skyldunnar stórjókst í fyrra

Read Full Article →

Fjár­festingafélag Lego-fjöl­skyldunnar, Kirkbi, bætti enn í fjár­hags­legan styrk sinn á síðasta ári. Heildar­eignir félagsins námu 189 milljörðum danskra króna í árs­lok 2025, sem sam­svarar um 3.590 milljörðum ís­lenskra króna, saman­borið við 177 milljarða danskra króna, eða um 3.360 milljarða ís­lenskra króna, ári áður. Jafn­framt skilaði félagið met­hagnaði fyrir skatta, 22,6 milljörðum danskra króna, sem jafn­gildir um 429 milljörðum ís­lenskra króna. Það er ör­lítið meira en árið áður, þegar hagnaðurinn nam 22,5 milljörðum danskra króna. Sam­kvæmt um­fjöllun Børsen skýrist sterka af­koman fyrst og fremst af Lego-sam­stæðunni sjálfri. Lego hagnaðist um 16,7 milljarða danskra króna á árinu 2025, eða sem nemur um 317 milljörðum ís­lenskra króna, sem er met­hagnaður hjá félaginu. Kirkbi nýtur þess beint, enda á félagið 75% hlut í Lego. Stjórnarformaður Kirkbi Thomas Kirk Kristian­sen, sem á um 26% hlut og fer með 37% atkvæðavægi, segir að árið 2025 hafi í heild verið gott ár fyrir félagið, með sterkum vexti og mikilvægum fjár­festingum í Lego-vöru­merkinu. Þótt Lego hafi skilað mjög sterkri af­komu varð mun minni ávöxtun af fjár­mála­fjár­festingum en árið áður. Hún nam 1,7 milljörðum danskra króna, eða um 32 milljörðum ís­lenskra króna, saman­borið við 6,1 milljarð danskra króna, eða nærri 116 milljarða ís­lenskra króna, árið 2024. Þrátt fyrir það hélt Kirkbi hagnaði sínum í met­hæðum. Félagið segir að ársávöxtunin, 2,3%, hafi verið undir viðmiðum, meðal annars vegna gengis­sveiflna og minni áherslu á geira með mikinn vöxt. Á móti komi að fjár­festinga­safnið hafi skilað 5,9% meðalávöxtun á síðustu tíu árum, sem félagið telur trausta niður­stöðu. Kirkbi er lykilfélag í eignar­haldi fjórðu kynslóðar Kirk Kristian­sen-fjöl­skyldunnar, sem tók við stjórnar­taumum Lego-veldisins fyrir fáeinum árum. Undan­farin misseri hefur fjöl­skyldan lagt áherslu á að Kirkbi verði ekki aðeins eignar­halds­félag um Lego, heldur vett­vangur fyrir stærri langtíma­fjár­festingar, meðal annars á sviði lofts­lags­mála, leiks og menntunar barna. Í því skyni inn­leiddi félagið á síðasta ári nýtt skipu­lag með þremur megin­sviðum: Kirkbi Climate, Kirkbi Edu­cation og Kirkbi Holding. Í því síðast­nefnda er allt sem tengist Lego-vöru­merkinu og kjarna­rekstrinum. Fjár­festingar í lofts­lags­sviðinu, Kirkbi Climate, námu 1,2 milljörðum danskra króna á árinu, eða um 23 milljörðum ís­lenskra króna. Heildar­eignir þess sviðs jukust í 10,3 milljarða danskra króna, sem sam­svarar tæp­lega 196 milljörðum ís­lenskra króna. For­stjóri Kirkbi, Søren Thorup Søren­sen, segir nýja skipu­lagið hafa ein­faldað eignar­haldið og skýrt ábyrgðar­svið innan sam­stæðunnar. Að hans sögn skapar það sterkari grunn til að fylgja eftir langtímasýn eig­enda á næstu árum. Ekki var þó allt jákvætt í fjár­festinga­safni félagsins. Eignar­hlutur Kirkbi í afþreyingarfélaginu Merlin En­terta­in­ments setti neikvæðan svip á árið. Merlin tapaði 406 milljónum punda, sem í um­fjölluninni er jafnað til um 3,5 milljarða danskra króna, eða um 67 milljarða ís­lenskra króna. Sjá einnig Vöxtur Lego virðist óstöðvandi Tap Merlin kom þrátt fyrir að undir­liggjandi rekstur félagsins hafi skilað hagnaði upp á 4,8 milljarða danskra króna. Af­koman var hins vegar dregin niður af veru­legum niðurfærslum, þar á meðal á Madame Tussauds, auk kostnaðar vegna um­fangs­mikillar endur­skipu­lagningar. Sam­hliða þessu er Merlin þungt skuld­sett. Skuldir félagsins nema 44,8 milljörðum danskra króna, eða um 851 milljarði ís­lenskra króna. Sú skuld­setning hefur leitt til þess að bæði Moo­dy’s og Standard & Poor’s hafa lækkað láns­hæfis­mat félagsins, þar sem mats­fyrir­tækin telja skuldirnar of miklar í hlut­falli við af­komuna. Kirkbi á 47,5% í Merlin, á meðan Black­stone fer með 32% og kana­díski líf­eyris­sjóðurinn Canada Pension Plan Invest­ment á eftir­standandi hlut. Þrátt fyrir veik­leika í Merlin sýnir upp­gjör Kirkbi að Lego-fjöl­skyldan stendur áfram á afar sterkum fjár­hags­legum grunni. Metaf­koma Lego og vaxandi eignastaða Kirkbi gefa fjöl­skyldunni mikið svigrúm til áfram­haldandi fjár­festinga, bæði í kjarna­starf­seminni og í þeim verk­efnum sem hún telur styðja við langtíma­hags­muni komandi kynslóða. Sjá einnig For­stjóri Lego gagn­rýnir til­lögu um auð­legðar­skatt

Share this article