Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

For­stjóri Lego gagn­rýnir til­lögu um auð­legðar­skatt

Read Full Article →

Forstjóri Lego, Niels Christiansen, gagnrýnir harðlega tillögur Mette Fredriksen, forsætisráðherra Danmekur, um auðlegðarskatt og segir að slíkur skattur myndi valda talsverðum skaða. Danski Jafnaðarmannaflokkurinn hefur lagt til í aðdraganda þingkosninga síðar í mánuðinum 0,5% árlegan skatt á eignir einstaklinga að andvirði yfir 25 milljónir danskra króna, eða sem nemur 485 milljónum íslenskra króna. Þetta er eitt af helstu stefnumálum flokks Fredriksen fyrir kosningarnar. Þann 26. febrúar sl. boðaði Fredriksen þingkosningar sem munu fara fram 24. mars næstkomandi. Hún horfir þar til þess að njóta góðs af auknu fylgi sem rakið er til þess að hún stóð fast á sínu í deilum við Donald Trump Bandaríkjaforseta er varðar áhuga hans að taka yfir Grænland. Christiansen, sem situr jafnframt í stjórn Coloplast, móðurfélags Kerecis, segir í viðtali við Financial Times að auðlegðarskattur myndi í reynd hafa þau áhrif að draga töluvert fjármagn frá dönskum fyrirtækjum. „Það er mikil hætta á að þetta myndi hafa mjög neikvæð áhrif á samfélagið til lengri tíma litið – leiða til minni atvinnusköpun, minni skatttekna frá fyrirtækjum og minni samkeppnishæfni fyrir breiðan hóp danskra fyrirtækja.“ Í umfjölluninni er bent á að um miðjan níunda áratug hafi um helmingur af OECD löndum verið með auðlegðarskatta en mörg lönd, þar á meðal Danmörk, lögðu hann síðar niður. Mörg af stærstu fyrirtækjum Danmerkur hafa gagnrýnt hugmynd Jafnaðamannaflokksins, þar á meðal Novo Nordisk, Carlsberg, Maersk og Danfoss. Kim Fausing, forstjóri iðnfyrirtækisins Danfoss, hefur sagt að auðlegðarskattur vinni í raun gegn markmiði sínu og hvatti stjórnvöld fremur til að leggja áherslu á að stækka kökuna. „Við erum með heilan skóg af meðalstórum fyrirtækjum í þessu landi sem eru í eigu einkaaðila. Ef þau skattleggur þetta fólk vegna auðs þeirra þurfa þau að taka út meiri arð til að greiða skattinn. Þetta er grundvallarvandamál sem ýtir Evrópu og Danmörku enn á ný í ranga átt,“ sagði Fausing í viðtali við FT. Nýleg hækkun á auðlegðarskatti í Noregi er almennt talin helsta skýringin á því að metfjöldi auðugra Norðmanna hafa flutt úr landi til Sviss. Auðlegðarskattur í Noregi hefur einnig gert frumkvöðlum erfiðara fyrir að stofna sprotafyrirtæki, þar sem þeir eru skattlagðir fyrir óinnleystan hagnað af hlutabréfaeign sinni. Sjá einnig Auðugir Norðmenn flýja til Sviss

Share this article