Niels B. Christiansen, forstjóri Lego og einn farsælasti stjórnandi dansks atvinnulífs á síðari árum, varð sextugur í gær en af því tilefni fjallar danska viðskiptablaðið Børsen ítarlega um feril hans, sem markast af stjórnunarstörfum hjá nokkrum af stærstu og virtustu fyrirtækjum Danmerkur. Í umfjöllun blaðsins er rifjað upp að Christiansen hafi árið 2017 sent þáverandi stjórnarformanni Lego, Jørgen Vig Knudstorp, stutt textaskilaboð eftir að hann lét af störfum hjá Danfoss. Þar spurði hann einfaldlega hvort tími væri til að ræða saman. Skömmu síðar tók hann við sem forstjóri Lego. Frá því að hann settist í forstjórastólinn hjá Lego árið 2017 hafa tekjur og afkoma félagsins tvöfaldast. Velta leikfangaframleiðandans nemur nú 83,5 milljörðum danskra króna eða um 1.600 milljörðum íslenskra króna og er félagið þar með komið í hóp tíu stærstu fyrirtækja Danmerkur miðað við tekjur, samkvæmt Børsen. Christiansen er verkfræðingur að mennt frá Danmarks Tekniske Universitet og lauk námi þar með meðaleinkunnina 12,2 á gamla 13-stiga kvarðanum. Síðar bætti hann við sig MBA-prófi frá Insead í Frakklandi, þar sem hann var sagður efstur í sínum árgangi. Ferill hans hófst hjá ráðgjafarfyrirtækinu McKinsey en hann steig síðar inn í efstu stjórnunarstöður hjá GN Netcom. Þar var hann meðal annars við stjórnvölinn þegar félagið setti á markað fyrsta Bluetooth-heyrnartólið. Þaðan lá leiðin til Danfoss, þar sem hann gegndi ýmsum störfum frá 2004 og var forstjóri í níu ár. Þegar Christiansen tók við Danfoss árið 2008 skall fjármálakreppan á af fullum þunga. Fljótlega þurfti fyrirtækið að ráðast í mikinn niðurskurð og árið eftir tapaði reksturinn milljörðum króna. Með áherslu á einfaldari rekstur og sölu tiltekinna eininga tókst þó að rétta félagið af. Þegar hann lét af störfum hafði Danfoss stækkað um 60 prósent og staða þess styrkst verulega. Brottför hans vakti nokkra athygli vegna starfslokasamnings sem samkvæmt dönskum miðlum nam um 50 milljónum danskra króna, þótt hann hefði sjálfur ákveðið að láta af starfi. Þáverandi stjórnarformaður Danfoss, Jørgen Mads Clausen, sagði engu að síður að Christiansen hefði lokið hlutverki sínu hjá félaginu með miklum sóma. Hjá Lego beið hans annað viðsnúningsverkefni. Eftir mörg ár samfellds vaxtar hafði rekstur félagsins hikstað, gripið var til uppsagna og ráðist í tiltekt í birgðum. Jafnframt þurfti að auka nýsköpun og skerpa reksturinn. Undir stjórn Christiansens hefur Lego hins vegar styrkt stöðu sína á ný og vöruframboð félagsins aldrei verið meira. Í ársreikningi fyrir 2025 kom fram að 868 mismunandi vörur væru nú í sölu hjá félaginu. Viðmælendur Børsen lýsa honum sem skörpum, yfirveguðum og jarðbundnum stjórnanda. Troels Gjerrild, stjórnarformaður ráðningarfyrirtækisins Odgers Berndtson, segir greind hans og skýra sýn hafa ráðið miklu um árangur hans. Kasper Rørsted, fyrrverandi forstjóri Adidas, hefur sömuleiðis lýst honum sem vitsmunalega forvitnum og traustum stjórnanda sem standi föstum fótum á jörðinni. Sjálfur hefur Christiansen sagt að hann leggi meiri áherslu á árangur en að starfsmenn hans fari nákvæmlega sömu leið og hann sjálfur hefði valið. Skipulag þurfi að vera skýrt, en innan þess eigi fólk að hafa svigrúm til að taka ákvarðanir og jafnvel gera mistök, svo fremi sem það sé gert af heilindum. Þótt hann hafi stýrt fyrirtækjum í ólíkum greinum, allt frá fjarskiptum og iðnaði til leikfanga, hefur tæknin verið rauður þráður í ferli hans. Hann hefur sjálfur sagt að hann sækist eftir störfum þar sem tæknileg og verkfræðileg áskorun sé hluti af verkefninu og að þess vegna hafi hann til dæmis aldrei séð sjálfan sig fyrir sér sem forstjóra tannkremsfyrirtækis. Með árangri sínum hjá GN Netcom, Danfoss og Lego hefur Niels B. Christiansen skipað sér í hóp áhrifamestu stjórnenda Danmerkur og samkvæmt umfjöllun Børsen hófst nýjasti kaflinn á þeim ferli með einu stuttu sms-i.