Ásgrímur Eiríksson hefur verið ráðinn framleiðslustjóri Njarðar. Njörður var stofnað árið 2023 og og vinnur að uppbyggingu framleiðslu á magnesíummálmi úr sjó með nýrri íslenskri tækni. Ásgrímur er vélaverkfræðingur með meistaragráðu frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU), þar sem hann sérhæfði sig í sjávar- og hafverkfræði. Hann býr yfir víðtækri reynslu af tæknilegum rekstri, hönnun og uppbyggingu flókinna kerfa. Áður starfaði Ásgrímur hjá Linde Gas, þar sem hann kom meðal annars að hönnun og uppsetningu tæknikerfa fyrir landeldi og veitti viðskiptavinum á Norðurlöndum tæknilega ráðgjöf. Hann rak jafnframt eigið fyrirtæki, Veitutækni ehf., og starfaði áður hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hjá Nirði mun Ásgrímur leiða uppbyggingu og rekstur fyrstu framleiðslueiningar félagsins, tryggja faglega innleiðingu framleiðsluferlisins og gegna mikilvægu hlutverki í næsta áfanga uppbyggingar Njarðar. Sjá einnig Prófa framleiðslu fyrir 30 milljarða verksmiðju í sumar „Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Ásgrím til liðs við okkur. Hann er framúrskarandi verkfræðingur með víðtæka reynslu af tæknilegum verkefnum og uppbyggingu framleiðslukerfa. Ásgrímur kemur til félagsins á mikilvægum tímamótum og mun gegna lykilhlutverki við að leiða uppbyggingu prufuframleiðslu Njarðar og styrkja framkvæmd næsta áfanga í vegferð félagsins,“ segir Stefán Ás Ingvarsson, forstjóri Njarðar.