Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

30-35 milljarða verksmiðja

Read Full Article →

Nýsköpunarfyrirtækið Njörður, sem stefnir að því að reisa magnesíum-málmverksmiðju á Grundartanga, vinnur hörðum höndum við að undirbúa fyrstu prófun á framleiðslunni hér á landi, sem áætlað er að fari fram í lok sumars. Ekki er hægt að hefja byggingu verksmiðjunnar fyrr en að loknu umhverfismati og öflun allra tilskilinna leyfa, en að sögn Stefáns Ás Ingvarssonar, forstjóra Njarðar, er stefnt á að hefja framkvæmdir haustið 2027. Samkvæmt áætlunum er um 30-35 milljarða króna framkvæmd að ræða. Þegar verksmiðjan verður komin í full afköst er reiknað með að framleiðslan muni nema um 50 þúsund tonnum af magnesíum á ári, sem skili um 40-60 milljarða útflutningstekjum á ári hverju. Þá áætlar fyrirtækið að nýja verksmiðjan muni skapa um 300 störf. „Það er erfitt að segja nákvæmlega til um hvenær við verðum komin í þessi fullu afköst en ef allt gengur samkvæmt áætlun reiknum við með að það geti tekið um þrjú ár frá því að uppbyggingin hefst. Uppbyggingin verður framkvæmd í nokkrum skrefum. Það er skynsamlegasta leiðin af því að því fyrr sem ein framleiðslulína er tilbúin, þeim mun fyrr er hægt að framleiða fullbúna afurð.“ Hann segir að ekki sé unnt að semja um aðgang að nauðsynjum á borð við raforku fyrr en að loknu umhverfismati, en áætlanir geri ráð fyrir að raforkuþörf verksmiðjunnar verði um 90 megavött á ári. Aðspurður segir Stefán Njörð vera að fullu fjármagnaðan fram að uppbyggingu magnesíumverksmiðjunnar, en fjárfestingarfyrirtækið Silfurberg hefur leitt fjármögnun fyrirtækisins. Friðrik Steinn Kristjánsson, sem á Silfurberg ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Jónsdóttur, er stjórnarformaður Njarðar. „Eftir prófunina á framleiðslunni munum við hefja formleg samtöl við lánastofnanir og fjárfesta en Friðrik mun leiða þessi samtöl. Í þessu samhengi horfum við meðal annars til stofnana á borð við Evrópubankann, auk íslenskra og erlendra einkafjárfesta.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article