Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Léttari en aðrir burðarmálmar

Read Full Article →

Nýsköpunarfyrirtækið Njörður, sem stefnir að því að reisa magnesíum-málmverksmiðju á Grundartanga, vinnur hörðum höndum við að undirbúa fyrstu prófun á framleiðslunni hér á landi, sem áætlað er að fari fram í lok sumars. Framleiðslan byggir á nýstárlegri tækni til magnesíumvinnslu í sjó. Stefán Ás Ingvarsson, forstjóri Njarðar, lýsir magnesíum sem málmi framtíðarinnar. „Iðnaðurinn er mjög meðvitaður um þá eiginleika sem magnesíumblöndur búa yfir sem léttasti burðarmálmurinn. Þær eru til að mynda 36% léttari en ál og yfir 70% léttari en algengustu stálblöndurnar. Magnesíumblöndur standa sambærilegum álvörum framar þegar kemur að styrk miðað við þyngd. Jafnframt eru þær einstaklega tæringarþolnar, sem skilar sér í endingarbetri íhlutum og mun lengri líftíma en næst með hefðbundnum málmblöndum.“ Þessir eiginleikar geri fyrirtækjum kleift að hanna léttari, þynnri og endingarbetri vörur sem mikil eftirspurn sé eftir í bílaiðnaði og öðrum hátæknigreinum. „Þetta þýðir að rafbíll sem er gerður úr magnesíum í stað áls getur náð meiri drægni með sömu rafhlöðum og eru þegar notaðar í rafbíla.“ Stefán segir að ál hafi lengi vel haft það fram yfir magnesíum að auðveldara sé að vinna með það við framleiðslu á til dæmis bílum og ýmsum raftækjum. Aftur á móti hafi nýlegar framfarir við framleiðslu á magnesíum leitt til þess að hægt sé að vinna jafn auðveldlega með það og aðra málma. „Þetta varð til þess að áhuginn á magnesíum reis upp úr hálfgerðum dvala. Framboðið af magnesíum enn sem komið er það lítið að þrátt fyrir að fyrirtæki myndu glöð vilja nota það í sinni framleiðslu er verðið það hátt að það myndi ekki borga sig. Aftur á móti hefur þessi nýja framleiðsluaðferð leitt til þess að það verður ódýrara og auðveldara að vinna með magnesíum, sem er forsenda þess að hægt sé að nota það við framleiðslu á bílum, flugvélum og hátæknivörum.“ Að sögn Stefáns sjá fyrirtæki ýmsa aðra kosti við magnesíumblöndur heldur en að þær séu léttari en aðrir valkostir. „Tökum sem dæmi snjallsíma. Með því að nota magnesíumblöndu við framleiðslu símans yrði hann ekki einungis léttari heldur gæti málmhúðin verið þynnri en samt haldið áfram sama styrk. Tæknifyrirtækin vilja gjarnan koma meiri búnaði inn í símann, sem er mögulegt með þessum rúmmálssparnaði. Þessir eiginleikar eru vitaskuld eftirsóknarverðir fyrir hátæknifyrirtæki í hinum ýmsu geirum.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article